Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabænum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan





Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46
     -    ()
klukkan:
Dómarar:
Umfjöllun

Oddur var öruggur á vítalínunni

21. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabænum

Það ætlar að ganga erfiðlega fyrir Akureyri að landa sigri í Garðabænum gegn Stjörnunni. Liðin mættust síðastliðinn fimmtudag og vonaðist maður til að lið Akureyrar kæmi fullt sjálfstrausts eftir fínan sigur í síðustu umferð. Þvert á móti þá virkuðu menn óöruggir og engan veginn klárir í verkefnið í byrjun. Stjarnan byrjaði betur og hafði frumkvæðið í leiknum þó Akureyri væri ekki langt undan.

Í stöðunni 6-5 fyrir Stjörnuna skora þeir þrjú mörk í röð og breyta stöðunni í 9-5 og staðan orðin afleit. Þá kom hins vegar fínn kafli hjá liðinu og þeir jafna í 10-10. Á næstu mínútum snerist leikurinn og Akureyri kemst yfir í 12-14. Adam var þó ekki lengi í Paradís því að Stjarnan svarar með fjórum mörkum í röð áður en Hörður Fannar minnkaði muninn í 16-15 sem voru hálfleikstölur.

Hörður Fannar, Árni Sigtryggsson og Heimir Örn voru atkvæðamestir í sóknarleiknum í fyrri hálfleik en vörnin var enganvegin nógu sannfærandi.

Akureyri náði loks forystunni í stöðunni 18-19 en náði aldrei að hrista Stjörnuna af sér sem náði raunar einu sinni að komast yfir í stöðunni 25-24. Akureyri endurheimti forystuna með næstu þrem mörkum 25-27 og virtist vera með leikinn í hendi sér. En Stjarnan gafst ekki upp og í síðustu sókn Akureyrar dæmdu dómararnir ruðning á Árna Sigtryggsson en sá dómur kórónaði lélega frammistöðu dómaranna í leiknum. Stjarnan fékk síðan vítakast þegar leiktíminn rann út og þrátt fyrir að Hafþór hefði verið búinn að verja þrjú vítaköst í leiknum náði Stjarnan að jafna leikinn í 28-28 úr vítakastinu.

Eins og gefur að skilja voru þessi úrslit vonbrigði í leik sem átti að öllu eðlilegu að skila tveim stigum í hús. Liðið byrjaði illa og lét arfaslaka dómara pirra sig og einhvernvegin náðist aldrei upp baráttustemming í liðið. Jónatan klikkaði á tveimur vítaköstum en Stjarnan á fjórum, þar af varði Hafþór þrjú. Varnarleikurinn var fálmkenndur í byrjun og sömuleiðis markvarslan en um miðjan fyrri hálfleikinn hresstist hvortveggja og komst Hafþór bærilega frá leiknum upp frá því.

Oddur steig upp í seinni hálfleiknum en fór hins vegar illa að ráði sínu er hann lét skapið hlaupa með sig í gönur sem kostaði brottrekstur. Árni átti mjög góða spretti en virtist ekki vera í náðinni hjá dómurum leiksins sem dæmdu á hann undarlegustu sóknarbrot þar sem klárlega var brotið á honum. Geir Guðmundsson átti góða innkomu í seinni hálfleiknum en erfitt er að benda á einhvern einn og útnefna mann leiksins að þessu sinni.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 9 (5 víti), Árni Sigtryggsson 5, Heimir Örn Árnason og Hörður Fannar Sigþórsson 4 mörk hvor, Jónatan Magnússon 3, Geir Guðmundsson 2 og Guðlaugur Arnarsson 1.
Hafþór stóð í markinu allan tímann og varði 16 skot, þar af 3 vítaköst.

Ekki dugar að gráta lengur tapað stig heldur stíga nú upp og sýna hvað í liðinu býr í næsta leik sem er gegn Fram næstkomandi mánudagskvöld í Íþróttahöllinni klukkan 19:00.

Tengdar fréttir

Vonandi verður allt í sóma með útsendingu SportTV.is í dag

18. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Stjarnan - Akureyri á SportTV.is

Í dag klukkan 18:30 leika Stjarnan og Akureyrir Handboltafélag og fer leikurinn fram í Garðabæ. Garðabærinn hefur reynst okkur erfiður útivöllur í gegnum tíðina en með sama baráttuanda og einkenndi leik Akureyrar gegn Gróttu í síðustu umferð ætti liðið að geta snúið þeirri hefð við í dag.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á SportTV.is og hvetjum við þá sem eiga þess kost að fylgjast með útsendingunni.

Smelltu hér til að sjá útsendinguna.


Það er kominn tími til að spila alvöru handbolta í Garðabænum!



16. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur á fimtudaginn gegn Stjörnunni

Á fimmtudaginn heldur meistaraflokkur Akureyrar í Garðabæinn og mætir þar heimamönnum úr Stjörnunni. Þegar liðin mættust hér í nóvember leit allt út fyrir öruggan sigur heimamanna en með kæruleysi og klaufaskap missti liðið niður örugga forystu og úr varð taugastrekkjandi leikur þar sem minnstu mátti muna að Stjarnan stæli stigi á lokasekúndum leiksins.

Það tókst þeim sem betur fer ekki en næsta víst að Garðbæingar hyggja á hefndir á fimmtudaginn og klárt mál að Akureyri þarf að mæta í leikinn af fullum krafti. Síðasti útileikur fór hörmulega en að sama skapi lék liðið frábærlega í síðasta heimaleik og treystum við því að strákarnir mæti í leikinn með sama hugarfari og gegn Gróttu hér heima.

Kominn tími á sigur í Garðabænum
Stjörnumenn hafa reynst Akureyri verulega erfiðir á heimavelli sínum og unnu til dæmis báða leikina þar á síðustu leiktíð og sömuleiðis sigraði Stjarnan báða heimaleikina á leiktíðinni 2007-2008 en þá var það einmitt Heimir nokkur Árnason sem reyndist Akureyringum erfiður. Það er sem sé kominn tími á að sækja tvö stig í Garðabæinn en það hefur ekki gerst síðan 12. nóvember 2006 með ævintýralegum endaspretti þar sem Goran Cusic tryggði Akureyri sigur úr vítakasti eftir að leiktíma var lokið, en það var raunar í eina skiptið sem Akureyri var yfir í leiknum.

Hér má lesa umfjöllun fréttaritara okkar um þennan sögufræga leik.


Það er orðið langt síðan Akureyri tók sigurhringinn í Garðabænum

Samkvæmt upplýsingum á SportTV.is ætla þeir að sýna leikinn beint á netinu og eru það að sjálfsögðu góðar fréttir fyrir stuðningsmenn hér norðanlands. Vonandi tekst betur til hjá þeim félögum en síðast en útsending þeirra frá leik FH og Akureyrar misheppnaðist gjörsamlega eins og menn muna. En við vonum bara það besta og minnum á að leikurinn hefst klukkan 18:30 í Mýrinni.

Næsti heimaleikur verður síðan mánudaginn 22. febrúar þegar Fram kemur í Höllina. Þar eru gamalkunnir Akureyringar innanborðs, menn eins og Halldór Jóhann Sigfússon, Hákon Stefánsson og Magnús Stefánsson sem hefur reyndar glímt við slæm meiðsli síðan í byrjun desember. Nánar um Fram leikinn síðar.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson