Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Grótta kippti Akureyri niður á jörðina - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan





Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46
     -    ()
klukkan:
Dómarar:
Umfjöllun

Andri Snær var öruggur á vítalínunni í dag

21. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Grótta kippti Akureyri niður á jörðina

Þó að leikur Gróttu og Akureyrar hæfist klukkan 16:00 í dag var nokkuð ljóst að lið Akureyrar var ekki mætt til leiks, andlega í upphafi leiksins. Gróttumenn voru hins vegar fullkomlega tilbúnir í leikinn og eftir tæplega 10 mínútna leik var staðan 7-1 fyrir heimamenn.

Á þessum kafla var leikur Akureyrar í hreinu tjóni, vörnin engin og markvarslan bar keim af því. Sóknarleikurinn var algjörlega bitlaus og ekkert í gangi. Hafþór kom í markið eftir 17 mínútna leik og átti fína innkomu, byrjaði t.d. á því að verja vítakast. Í stöðunni 11-5 fyrir Gróttu kom loksins góður kafli og með fjórum mörkum í röð var staðan orðið skárri, 12-9 en Gróttan kláraði fyrri hálfleik með síðustu þrem mörkunum og staðan því 15-9 fyrir heimamenn í hálfleik.

Það var eins og að kæmi allt annað lið inná í upphafi seinni hálfleiks, fjögur mörk Akureyrar í röð og staðan orðin 13-15 eftir örstutta stund. Gróttumenn misstu þó ekki dampinn og héldu forystunni í 2-3 mörkum allt upp í stöðuna 21-19 en þá kom slakur kafli Akureyrar og forysta Gróttu fór aftur upp í sex mörk, 25-19 og aftur 26-20.

Akureyri spýtti þá í lófana og með góðum kafla og fimm mörkum í röð var munurinn kominn í eitt mark, 26-25 og allt virtist mögulegt. En Grótta stóðst áhlaupið og landaði að lokum þriggja marka sigri 29-26.

Arfaslakur fyrri hálfleikur varð Akureyrarliðinu að falli í dag og erfitt að finna skýringu á því af hverju menn mættu ekki klárir í leikinn. Vissulega var ekki gert ráð fyrir því að þurfa að þvælast suður í bíl en það eitt og sér er ekki fullgild ástæða.

Seinni hálfleikurinn var hins vegar mun betri og virtist ávallt vanta herslumuninn upp á að brjóta Gróttuliðið á bak aftur.

Ljósi punkturinn í leiknum var helst góð vítanýting en öll 7 vítin nýttust og þar að auki vörðu markverðir liðisins tvö víti af þeim þrem sem liðið fékk á sig.

En nú er þessi leikur að baki og nú verða menn einfaldlega að snúa sér að næsta leik, heimaleik gegn Fram á fimmtudaginn og sýna að þessi úrslit voru hreint og klárt slys.

Mörk Akureyrar skoruðu: Andri Snær Stefánsson 8 (6 úr vítum), Árni Sigtryggsson 5, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Jónatan Magnússon 3 (1 víti), Oddur Gretarsson 3, Heimir Örn Árnason 2 og Hreinn Hauksson 1.
Hörður Flóki varði sex skot, þar af 1 víti og Hafþór varði tíu skot og sömuleiðis eitt vítakast.

Hjá Gróttu var Hjalti Pálmason yfirburðamaður og skoraði ellefu mörk.

Þrátt fyrir tapið er Akureyri enn í 2. sæti deildarinnar sama hvernig aðrir leikir fara en umferðinni lýkur með þrem leikjum annaðkvöld.

Á vefnum sport.is má sjá myndir frá leiknum og sömuleiðis viðtal við Rúnar Sigtryggsson eftir leikinn.

Tengdar fréttir

Andri og Gulli frekar súrir með tapið



22. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl við leikmenn eftir Gróttuleikinn

Að vanda tóku fjölmiðlar viðtöl við leikmenn eftir Gróttuleikinn í gær. Andri Snær var tekinn tali af blaðamanni Morgunblaðsins:

„Fyrst og fremst fór hræðilegur fyrri hálfleikur með þetta hjá okkur,“ sagði Andri Snær Stefánsson sem gerði 8 mörk fyrir Akureyri í 29:26 tapi fyrir Gróttu í dag í N1-deildinni í handknattleik. Sex af þessum mörkum komu úr vítum, þar sem Andri Snær sýndi mikið öryggi en honum var þó klaufaskapur norðanmanna hugleikinn.
„Ég veit ekki hvað veldur, við áttum frábæran leik gegn FH í síðasta leik og höfum jafnvel verið of værukærir, haldið að við þyrftum ekkert að hafa fyrir sigri en Gróttumenn mættu eins og grenjandi ljón svo við vorum heppnir að vera ekki meira undir eftir fyrri hálfleik. Við þurftum svo að hleypa leiknum aðeins upp eftir hlé til að komast inní hann og það tókst næstum en vorum bara klaufar, sjálfum okkur verstir og Grótta var miklu betra liðið í dag,“ sagði Andri Snær.

Rafnar Orri Gunnarsson hjá Fréttablaðið (visir.is) ræddi við Guðlaug Arnarsson.
„Já eigum við ekki að segja það að ferðalagið hafi setið í leikmönnum“, sagði Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyris, eftir tap gegn Gróttu í dag. En þeir félagar þurftu að keyra suður vegna þess að allt flug liggur niðri um þessar mundir sökum elgosins.
„Það er samt ekkert ástæðan, þeir mættu bara gríðarlega tilbúnir en við ekki. Það var nú alveg vitað mál að þeir myndi koma brjálaðir í þennan leik. Það vantaði vörn og vantaði góð skot. Þetta var bara þetta týpíska, þeir mættu tilbúnari en við, “ sagði Guðlaugur að lokum.

Hjalti Pálmason, hetja Gróttumanna var býsna sáttur í viðtali við Morgunblaðið:
„Eins og menn vita höfum við oft verið lygilega nálægt því að vinna fleiri leiki í vetur og leiðinlega oft tapað með einu marki. Okkur hefur sjálfum fundist stígandi í liðinu en oft fundist vanta einhvern smá neista til að gera út um leiki,“ sagði Hjalti eftir leikinn.
„Við vorum grátlega nálægt því gegn Haukum um daginn og ætli það hafi ekki verið kornið sem fyllti mælinn. Svo er dramað í kringum Halldór Ingólfsson og að Geir Sveinsson kom til að taka við en það hefur líklega bara þjappað liðinu betur saman, líklega verið sparkið sem þurftum að fá í rassinn. Geir hefur verið með okkur í viku og ekki farið útí miklar taktískar breytingar en hann er gríðarlega reyndur, menn hlusta á hann og hann hefur náð meiri yfirvegun í leik okkar. Það hefur kannski verið það sem þurfti, “ sagði Hjalti eftir leikinn.


Rúnar og strákarnir þurfa að hafa fyrir því að komast til leiks í dag

21. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Eldgosið á ekki að hafa áhrif á Gróttuleikinn í dag

Allt innanlandsflug var fellt niður í dag vegna eldgossins sem hófst í nótt. Lið Akureyrar Handboltafélags átti að fljúga núna í hádeginu til að komast í leik dagsins. Brugðust menn skjótt við og eru strákarnir á leiðinni suður á bílaleigubílum. Við heyrðum í þeim nú rétt fyrir hádegið og voru þeir þá nýlega komnir framhjá Blönduósi.

Liðið ætti því að ná á Seltjarnarnesið í tæka tíð en leikurinn verður sem kunnugt er klukkan 16:00 í sjónvarpinu.

Bent er á að frítt er á leikinn og því hvetjum við alla stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna á leikinn!


Það var svo sannarlega kominn tími á að ríkissjónvarpið sýndi leik Akureyrar

21. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Grótta – Akureyri sýndur á RÚV klukkan 16:00

Það er ekki langt á milli leikja hjá Akureyrarliðinu þessa dagana, eftir þýðingarmikinn sigur á FH á fimmtudagskvöldið fljúga strákarnir suður í dag til að keppa við Gróttu á Seltjarnarnesinu. Akureyri hefur með frábærri frammistöðu í síðustu leikjum náðöðru sæti N1 deildarinnar og afar brýnt að mæta einbeittir til leiks í dag til að missa ekki niður árangurinn sem síðustu leikir hafa skilað liðinu.

Gróttuliðið sem leikur nú undir stjórn nýs þjálfara er óútreiknanlegt lið. Geir Sveinsson sem hér áður fyrr þjálfaði Val tók við þjálfun liðsins fyrir nokkrum dögum þegar Gróttumenn spörkuðu Halldóri Ingólfssyni. Gróttuliðið var óheppið að fá ekkert út úr síðasta leik þegar þeir heimsóttu topplið Hauka. Undir lok þess leiks átti Grótta alla möguleika á að gera út um leikinn, eða í það minnsta tryggja sér jafntefli en þess í stað náðu Haukar að skora síðasta mark leiksins og hirtu bæði stigin.

Það hefur verið góður stígandi í Akureyrarliðinu í síðustu leikjum, baráttan og grimmdin er til staðar og vonandi sýna strákarnir okkur það í dag að það er engin tilviljun að þeir eru í slagnum á toppnum.

Það er gleðilegt að RÚV ætlar að sýna leikinn beint og hefst útsendingin klukkan 16:00 en þetta er fyrsti sjónvarpsleikur Akureyrarliðsins síðan í október 2008 og svo sannarlega kominn tími til.

Nú er bara að koma sér vel fyrir framan við sjónvarpið og senda góða strauma til strákanna. Stuðningsmenn á Höfuðborgarsvæðinu eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta á Seltjarnarnesið og taka virkan þátt í slagnum með strákunum, athugið að það er frítt inn á leikinn.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson