Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Góður endasprettur tryggði stig í Víkinni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan





Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 26

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 40

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 42

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 43

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 44

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 45

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/leikjaefnishaus.php on line 46
     -    ()
klukkan:
Dómarar:
Umfjöllun

Sveiflukenndur leikur skilaði stigi í dag



6. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góður endasprettur tryggði stig í Víkinni

Akureyri mætti í Víkina í dag og mætti þar liði Víkings sem féll endanlega úr deildinni í síðustu umferð. Þrátt fyrir að vera fallið nú þegar hafa Víkingar verið að leika vel en misst ófá stigin úr höndunum á lokamínútunum.

Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti og sást mikill munur á sóknarleik liðsins frá síðustu leikjum. Akureyrarliðið leiddi leikinn og spilaði góða vörn og virtist aðeins vera tímaspursmál hvenær liðið myndi skilja sig frá heimamönnum.

En þá kom mjög slakur kafli þar sem sóknin snarstöðvaði og Víkingar refsuðu með ófáum mörkum úr hröðum sóknum. Skyndilega var staðan orðin 11-7 eftir að Akureyri hafði leitt 5-6. En Akureyrarliðið hefur sýnt það að það gefst ekki upp og fínn lokakafli sá til þess að munurinn var aðeins eitt mark í hálfleik, 12-11.

Akureyrarliðið varð fyrir áfalli í byrjun síðari hálfleiks en Bergvin Þór Gíslason sem hafði verið sprækur tók vítakast sem Einar Baldvin varði með höfðinu en slakir dómarar leiksins gáfu Begga beint rautt spjald sem er ansi slakur dómur enda tók Einar Baldvin skref til hliðar til að verja skotið.

Heimamenn nýttu sér meðbyrinn með rauða spjaldinu og komust fljótlega aftur í þriggja marka forystu. Okkar menn reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn og það tókst loksins þegar um fimm mínútur lifðu leiks. Víkingar náðu aftur forystunni með marki frá Atla Karli en Brynjar Hólm sem kom af krafti inn í leik Akureyrar jafnaði metin á ný.

Akureyri fékk svo boltann þegar um mínúta var eftir og komst Brynjar Hólm í gegn, brotið var á honum en hann skaut framhjá. Dómararnir ákváðu að dæma ekkert og því fengu Víkingar tækifæri á að taka öll stigin. Þeirra sókn lauk með aukakasti þegar tíminn var búinn sem ekkert varð úr.

Jafntefli 20-20 niðurstaðan sem er líklega sanngjörn niðurstaða. Bæði lið ákaflega sveiflukennd yfir leikinn en vissulega situr í manni að ekkert hafi verið dæmt þegar Brynjar fór í gegn á lokamínútunni.

Vörnin var að venju góð hjá liðinu en mörg af mörkum Víkinga komu úr hröðum sóknum. Tomas Olason byrjaði í markinu en fann sig ekki, Hreiðar Levý kom í rammann undir lok fyrri hálfleiks og skilaði sínu.

Sóknin hinsvegar var ákaflega sveiflukennd, á tímum gekk hún vel og gaf góð færi sem reyndar nýttust ekki alveg nógu vel enda átti Einar Baldvin stórleik í marki Víkinga. En á löngum köflum var lítið sem ekkert í gangi, þá sérstaklega þegar Víkingarnir fóru að mæta framarlega og loka á skyttur liðsins.

Halldór Logi var öflugur í dag en það fór mikið fyrir honum í vörninni og sóknarlega sérstaklega fyrri hluta leiks. Ingimundur var einnig magnaður í vörninni og skoraði gott mark þegar hann kom fram í seinni bylgju. Sigþór og Bergvin áttu fína kafla í sókninni en Beggi lék auðvitað takmarkað í leiknum útaf rauða spjaldinu. Brynjar Hólm átti flotta innkomu í dag og var óhræddur við að taka af skarið sem er nákvæmlega það sem við viljum frá honum.

Hinsvegar var nýting hornafæra alls ekki nógu góð hjá liðinu. Kristján Orri var 0/2 í horninu, Heiðar Þór var 0/1 og Andri Snær var 1/3 sem gerir 1 mark úr 6 skotum í horninu. Það er bara því miður ekki nógu gott.

En eins og ég kom að áður þá er jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða og skilar Akureyri 6 stigum fyrir ofan ÍR þegar Breiðhyltingar eiga eftir 5 leiki en Akureyri 4. Í rauninni er Akureyri með 7 stig í forskot á Breiðhyltingana enda hefur liðið betur í innbyrðisviðureign liðanna þannig að ef þau enda með jafn mörg stig verður Akureyri alltaf fyrir ofan.

Tengdar fréttir

Friðrik og Kristján spjölluðu við fimmeinn.is



7. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir jafnteflið gegn Víkingi

Það er ekki hægt að segja að það hafi verið fjölmennt lið fjölmiðlamanna í Víkinni í gærkvöldi til að fylgjast með leika Víkings og Akureyrar. Okkar maður var á staðnum og lýsti leiknum en þar fyrir utan var einungis tíðindamaður fimmeinn.is á staðnum. Lúther Gestsson tók viðtöl við þjálfara liðanna, Sverre og Ágúst auk tveggja leikmanna Akureyrar, þá Friðrik Svavarsson og Kristján Orra Jóhannsson. Viðtölin fjögur birtust á fimmeinn.is og fara þau hér á eftir:

Sverre: Þessir strákar sem ég er með eru tilbúnir í allt

Sverre Jakobsson þjálfari Akureyrar var nokkuð sáttur með að hafa tekið eitt stig úr Víkinni eftir jafntefli við Víkinga sem hann sagði vera hörkulið og ekkert auðvelt að eiga við.
Aðallega sagðist hann sáttur með karakterinn sem sitt lið hefði sýnt því þeir hefðu verið í ansi brattri brekku á köflum í leiknum. Sigurinn hefði getað dottið báðum megin undir lokin.
Það sem stæði uppúr væri það sem strákarnir hans hefðu sýnt í dag þrátt fyrir að laga þyrfti ýmislegt sóknarlega.

Aðspurður hvort hann héldi að þetta stig dygði til að halda liðinu í deildinni sagði Sverre ekki vita það og heldur ekki hvernig þetta allt saman myndi fara en þeir myndu bara halda áfram að berjast og berjast áfram og einbeita sér að þeim sjálfum.
Hann vonaði að þeir gætu haldið úti sínu sterkasta liði í síðustu fjórum leikjunum en eins og er eru allir að spila.

Friðrik Svavarsson: Sóknarfeilar allt of margir í dag

Friðrik Svavarsson leikmaður Akureyrar var þokkalega sáttur með eitt stig úr jafnteflinu við Víkinga þó honum hefði fundist kárlega að Akureyringar hefðu átt að taka bæði stigin.

Hann sagði tæknifeila sóknarlega hafa verið allt of mikla ásamt því að margir vafadómar hefðu litið dagsljósið en það hefðu kannski verið á báða bóga.
Karakterinn hefði verið ákaflega mikill að hafa tekist að snúa margsinnis stöðunni við eftir að hafa lent undir 3-4 mörkum.

Kristján Orri: Þægilegt að sega bara að ég hafi séð þetta illa

Kristján Orri hornamaður Akureyrar átti góðan dag í dag þegar Akureyri gerði jafntefli við Víkinga. Hann sagði hundfúll svona strax eftir leik að hafa bara fengið eitt stig en það væri auðvitað betra en ekki neitt.

Aðspurður um rauða spjaldið sem félagi hans Bergvin Þór fékk fyrir að skjóta boltanum í höfuð Einars Baldvins, sagðist hann ekki vita alveg hvað hægt væri að sega um svona, þetta hefði alltaf verið óvart en honum fannst þó Einar hafa fært sig örlítið til en líklega væri bara best að sega að hann hefði séð þetta illa, enda var hann langt frá.

Ágúst Jóhannsson: Þetta er bara saga liðsins í vetur

Ágúst Jóhannsson þjálfari Víkinga var sár eftir að hafa aðeins tekið eitt stig úr leiknum gegn Akureyri í dag og sagði þetta algerlega ótrúlegt og enn á ný væri hægt að nota setninguna næstum því.
„Í dag erum við yfir allan leikinn nema þarna í blálokinn og svo endar þetta jafnt. Þetta er eiginlega bara saga vetrarins og leikur liðsins í hnotskurn í vetur, því miður“.
Þeir hefðu gefið eftir á lokakaflanum og því væri hann hundsvekktur með að taka bara eitt stig úr leiknum því þeir ætluðu sér sigur í þessum leik, en líklega hefði þá vantað smá gæði undir lokin.
Það hefði ekkert verið erfitt að mótivera liðið fyrir þennan leik þrátt fyrir að engu væri að keppa en menn hefðu ákveðið að sýna það að þeir væru að falla með sæmd.
Gústi var svo spurður út í hvað honum fannst um rauða spjaldið sem Bergvin Þór fékk fyrir að skjóta boltanum í höfuð Einars Baldvins úr víti en hann sagðist ekki hafa séð það nægilega vel.

Þá mættu RÚV menn undir lok leiks og má sjá stutta umfjöllun þeirra um leikinn hér:



Víkingar hafa verið óheppnir í síðustu leikjum sínum

5. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Víkingi á sunnudaginn

Það er mikilvægur leikur fyrir Akureyri Handboltafélag á sunnudaginn þegar liðið fer suður og mætir Víkingum. Akureyri þarf nauðsynlega á stigunum að halda úr leiknum því liðið er í harðri baráttu í þéttum pakka liðanna í kringum sig.
Víkingar hafa reyndar ekki að neinu að keppa nema heiðrinum þar sem ljóst varð eftir síðustu umferð að liðið er fallið úr deildinni. Hins vegar hafa Víkingar örugglega fullan hug á að kveðja deildina með stæl og mæta því örugglega af krafti í leikinn.

Þeir börðust af krafti í síðustu leikjum sínum, töpuðu naumlega fyrir Aftureldingu í síðustu umferð, 26-28, gerðu þar áður jafntefli 24-24 við Fram og gerðu Haukum lífið leitt í fjögurra marka tapi 26-30 þannig að enginn skyldi vanmeta Víkinga.


Ágúst Jóhannsson þjálfari Víkinga var ekki sáttur í leik liðanna á Akureyri sem Akureyri vann með einu marki

Leikurinn hefst klukkan 16:00 og við hvetjum alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta og hvetja strákana.

Leikurinn verður svo í textalýsingu hér á heimasíðunni.


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson