Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 ÍR var of stór biti fyrir Ungmennaliðið - Akureyri Handboltafélag
Bjarni, Halldór Logi og Valþór Atli í kunnuglegum búningi
9. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar Akureyri U sækir ÍR heim á föstudag Ungmennalið Akureyrar á eftir að leika fjóra leiki í 1. deild karla, tvo útileiki og tvo heimaleiki. Á föstudagskvöldið halda strákarnir suður og mæta þar ÍR sem situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar. Eins og staðan ber með sér þá er ÍR eitt af öflugustu liðum deildarinnar og því er verkefni Ungmennaliðsins ekki einfalt.
Nokkrar tengingar eru á milli ÍR liðsins og Akureyrarliðsins. Þjálfari ÍR er Bjarni Fritzson sem lék með Akureyrarliðinu fjögur tímabil, þar á meðal sem þjálfari. Þá eru Halldór Logi Árnason og Valþór Atli Guðrúnarson, fyrrum leikmenn Akureyrar í hópi atkvæðamestu leikmanna ÍR.
Leikurinn fer fram í Austurbergi og hefst klukkan 19:30 og tilvalið fyrir stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu að byrja föstudagskvöldið með því að mæta á leikinn.
Ungmennaliðið fer í leikinn með gleðina að vopni
Þess má geta að á svipuðum tíma taka Hamrarnir á móti KR í KA heimilinu en sá leikur hefst klukkan 20:15 á föstudagskvöldið.
Og þá er rétt að minna á að laugardaginn 18. mars er komið að stórleik Akureyrar U og Hamranna þar sem án efa verður allt lagt í sölurnar. Nánar um þann leik síðar.