Þór - KA 1998, Ingó Sam skallar Dóra Fúsa
15. desember 1998
Þór Akureyri gegn KA í Íþróttahöllinni í 16-liða úrslitum SS-bikarsins 15. desember 1998. Hérna sjáum við síðustu mínútuna í leiknum. Þarna má sjá ýmsa fræga leikmenn eins og Guðjón Val Sigurðsson, Jónatan Þór Magnússon, Jóhann Gunnar Jóhannsson og fleiri. Það er hinsvegar Ingólfur Samúelsson, leikmaður Þórs, sem slær í gegn er hann skallar Halldór Jóhann Sigfússon undir lok leiks eftir að Halldór hafði tryggt KA sigur með marki úr vítakasti.