Þegar Kristján Orri kláraði ÍR-ingana
10. apríl 2015
Kristján Orri Jóhannsson fór illa með ÍR þegar Akureyri tók á móti ÍR-ingum í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins 2014-2015. Kristján skoraði 11 mörk í leiknum en það ótrúlega er að hann skoraði öll mörk Akureyrar í síðari hálfleiknum fyrir utan það síðasta í 23-20 sigri liðsins.