Hreiðar Levý ver tvö víti frá Óla Stef
31. október 2015
Valur og Akureyri mættust í Olís deildinni þann 31. október 2015 en goðsögnin Ólafur Stefánsson sneri aftur og lék sinn fyrsta leik fyrir Valsmenn í 19 ár. Eftir að fyrsta víti Valsmanna fór forgörðum fór Ólafur á vítapunktinn og reyndi fyrir sér gegn sínum fyrrum samherja í íslenska landsliðinu honum Hreiðari Levý Guðmundssyni. Óla tókst að skora tvö mörk af vítapunktinum en tvívegis sá Hreiðar við honum.
Í fyrra skiptið kom Hreiðar boltanum í stöngina og út en í síðara skiptið náði hann að koma fæti í boltann en í bæði skiptin náði Akureyri boltanum og lagði af stað í sóknina. Hreiðar var ánægður eftir leik að ná að sjá við Óla en gat þó ekki verið alltof ánægður enda unnu Valsarar leikinn að lokum 26-23.