Furðulegt rautt spjald Halldórs Loga eftir 45 sekúndna leik
19. nóvember 2015
Halldór Logi Árnason leikmaður Akureyrar fékk beint rautt spjald í leik gegn FH þann 19. nóvember 2015 eftir einungis 45 sekúndna leik fyrir brot á Einari Rafni Eiðssyni. Eins og sést í myndskeiðinu er dómurinn ansi harður en þó ákváðu dómarar leiksins að láta skýrslu fylgja fyrir aganefnd HSÍ. Sem betur fer var málið svo ekki tekið upp fyrir aganefnd og slapp Halldór því við leikbann.