Grótta - Akureyri 18-21, lokakaflinn
13. nóvember 2016
Akureyri átti síðustu tvær mínúturnar skuldlausar, Patrekur fiskaði vítakast sem Kristján Orri skoraði úr. Tomas varði frábærlega frá Finni Stefánssyni. Andri Snær fiskaði í kjölfarið ruðning á Finn og skoraði síðan tvö síðustu mörk leiksins og gríðarlega mikilvægur 18-21 sigur í höfn. Leikurinn í beinni útsendingu Akureyri TV.