Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Magnús í leik á Sjallamótinu

20. september 2006 - ÁS skrifar 

Magnús Stefánsson besti leikmaður Hamranna

Magnús Stefánsson skytta úr liði Akureyrar Handboltafélags var á dögunum valinn leikmaður ársins hjá knattspyrnuliði Hamranna. Magnús er ekki eini leikmaður Akureyrar sem spilaði knattspyrnu í sumar með Hömrunum en Andri Snær Stefánsson og Sveinbjörn Pétursson léku einnig með liðinu. Þá lék einnig Guðmundur Örn Traustason með liðinu en hann ákvað fyrir ekki svo löngu að fara suður og ganga til liðs við Fylki.

Heimasíðan óskar Magnúsi til hamingju með titilinn en Hamrarnir léku í sumar í 3. deildinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson