Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvað gerir 2. flokkur gegn Hetti?

21. september 2006 - SÁ skrifar 

2. flokkur: 2 æfingaleikir gegn Hetti

2. flokkur Akureyrar mun um helgina leika tvo æfingaleiki við Hött frá Egilstöðum en Höttur mun leika í 2. deild Íslandsmótsins í handbolta í vetur. 2. flokkurinn á að vera með efstu liðum flokksins í vetur og verður áhugavert að sjá hvernig liðið er að spila, þó auðvitað muni vanta í liðið um helgina þá leikmenn sem fara með liði Akureyrar suður. Fyrri leikurinn er í KA-Heimilinu á föstudag klukkan 20:30. Sá síðari verður í Síðuskóla klukkan 10:30.

Gaman verður að sjá þessa leiki og verður fróðvitnilegt að sjá hvernig lið Hattar, sem var á dögunum að fá liðsstyrk frá Akureyri, mun koma út. Segjast verður að afar gaman er að sjá lið af landsbyggðarsvæðinu taka þátt í Íslandsmótinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson