Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Lokahóf Akureyrar Handboltafélags fór fram í gærkveldi

6. maí 2007 - ÁS skrifar 

Lokahóf: Andri Snær og Guðrún Helga best

Í gærkveldi fór fram lokahóf Akureyrar Handboltafélags. Fyrsta tímabili félagsins er lokið, 2. flokkur á reyndar einn leik eftir, og því var fagnað. Af því tilefni var þeim leikmönnum sem þóttu hafa skarið framúr í vetur verðlaun. Tvö óvenjuleg verðlaun voru veitt sem eiga þó algjörlega rétt á sér. Hjá körlunum var félagi ársins valinn og hjá stelpunum var vinsælasta stúlkan valin. Þessir titlar fengu leikmenn sem höfðu hjálpað hvað mest upp á móralinn í liðinu. Úrslit kvöldsins voru þessi:

Karlar
Besti leikmaður meistaraflokks: Andri Snær Stefánsson
Mestu framfarir meistaraflokks: Sveinbjörn Pétursson
Félaginn: Þorvaldur Þorvaldsson

Besti leikmaður 2. flokks: Sveinbjörn Pétursson
Mestu framfarir 2. flokks: Valdimar Þengilsson

Konur
Besti leikmaður meistaraflokks: Guðrún Helga Tryggvadóttir
Vinsælasta stúlkan: Erla Hleiður Tryggvadóttir

Besti leikmaður unglingaflokks: Lilja Sif Þórisdóttir
Mestu framfarir unglingaflokks: Unnur Ómarsdóttir


Verðlaunahafarnir (Mynd: Skapti Hallgrímsson)
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson