Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú er hægt að skoða gang allra leikja Akureyrar frá upphafi

15. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Breytingar á heimasíðunni fyrir komandi tímabil

Nú þegar leiktímabilið 2008-2009 er að hefjast gerum við smávægilegar breytingar á heimasíðunni. Fyrst er að nefna að í vetur eru einungis karlalið meistaraflokks og 2. flokks sem keppa undir merki Akureyrar Handboltafélags en kvennaliðið er nú í umsjá KA.

Rétt er að vekja athygli á þeirri nýjung að nú er hægt að skoða úrslit leikja frá fyrri keppnistímabilum 2007-2008 og 2006-2007 en það er gert með því að velja leiktímabil hér í haus síðunnar. Þegar þú hefur valið tímabil kemur upp yfirlit yfir úrslit allra leikja meistaraflokka Akureyrar, bæði karla og kvenna á því tímabili og hægt að velja leik til að skoða allar fréttir honum tengdar, tölfræði og fara í gegnum textalýsinguna frá honum. Í valmyndinni vinstra megin á síðunni er auk þess hægt að skoða lokastöðu í deildum bæði karla og kvenna svo og úrslit allra deildarleikjanna á viðkomandi keppnistímabili.

Hvað varðar komandi keppnistímabil þá er ennþá beðið eftir endanlegri leikjaskrá fyrir N1-deildina auk þess sem leikmannalisti okkar er ekki búinn að taka á sig endanlega mynd.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson