 Akureyri mætir FH í Íþróttahöllinni á fimmtudagskvöldið
| | 15. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarÞrír dagar í fyrsta leik - hvað segir þjálfari FH?Spámennirnir á sport.is halda áfram að birta spá sína varðandi N1 deildina í vetur. Síðastliðinn laugardag kom fram að þeir spá fyrstu andstæðingum okkar úr FH 6. sæti deildarinnar á sama tíma og þeir spáðu Akureyri 8. sætinu. Þjálfari FH liðsins er Elvar Erlingsson en hann var einnig með liðið í fyrra þegar það gjörsigraði 1. deildina.
Eins og við gátum um fyrir helgina gengu tveir Akureyringar, Ásbjörn Friðriksson og Arnar Sveinbjörnsson í raðir FH í sumar. Elvar segir í viðtali á sport.is að markmið FH liðsins sé að halda sæti sínu í deildinni í vetur og telur að deildin ætti að verða jöfn og spennandi, Haukar séu með sterkasta hópinn en varar við vanmati á liði Akureyrar.
Um sitt lið segir Elvar: "FH er með ungt lið og ætlar að reyna nýta það sér í vil. „Við erum með frískt lið. Spilum þokkalegan varnarleik og markvörslu. Við spilum hraðan handbolta, erum nokkuð vel skipulagðir og í góðu formi. Við spilum af nokkurri ákefð og það vonandi fleytir okkur eitthvað áfram. Það að spila svona hratt getur verið hættulegt með svona ungt lið því þá vilja menn fara fram úr sér á köflum."
Viðtalið við Elvar má lesa í heild sinni á sport.is. |