Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Yfirlýsing KA, Þórs og HSÍ

16. maí 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Yfirlýsing | Samstarfi KA og Þórs um AHF lokið

Knattspyrnufélag Akureyrar (KA), Íþróttafélagið Þór (Þór) í samvinnu við Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hafa komist að samkomulagi um lok á samstarfi félaganna við rekstur meistaraflokks karla í handknattleik.

Þór mun alfarið sjá um rekstur Akureyri handboltafélags og KA mun senda eigið lið til keppni.

Akureyri Handboltafélag og KA munu því bæði taka þátt í keppni í 1. deild að ári.

Jafnframt munu félögin senda sameiginleg lið til keppni í kvennastarfi undir nafni KA/Þór.

Bæði félögin þakka HSÍ fyrir þeirrar aðkomu að málinu og óska hvort öðru velfarnaðar við uppbyggingu handboltans á Akureyri.

Akureyri 16. maí 2017

Hrefna G. Torfadóttir
Fyrir hönd KA:

Árni Óðinsson
Fyrir hönd Þórs:

Guðmundur B. Ólafsson
Fyrir hönd HSÍ

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson