Jóhanna skoraði 2 mörk gegn Haukum
| | 30. september 2007 - BHB skrifarAkureyri - Haukar (Umfjöllun)Lið Akureyrar mætti Haukum í gær í KA-heimilinu. Því miður náðum við ekki að stríða Haukaliðinu eins mikið og við gerðum hérna heima á síðustu leiktíð, þegar við töpuðum 21-27.
Í liðið í dag vantaði bæði Ingu Dís og Jónatan þjálfara en hann var fyrir sunnan með karlaliðinu að spila gegn HK þannig að Jóhannes Bjarnason sá um liðið að þessu sinni.
Stjörnum prýtt lið Hauka réð lögum og lofum alveg frá byrjun og náði fljótt góðri forystu. Slæmur kafli Akureyrar í fyrri hálfleik gerði alveg útum okkar möguleika en við lentum í að vera tveimur leikmönnum færri á þeim kafla og tapa boltanum hvað eftir annað, Haukar skoruðu 6 auðveld mörk í röð á þessum kafla.
Akureyrar stelpur voru mjög óheppnar með skot sérstaklega í fyrri hálfleik þegar boltinn vildi ekki inn og hvað eftir annað small boltinn í tréverkinu. Einnig voru dómararnir í algjöru rugli og fannst flestum halla frekar á okkur, en við fengum 6 brottvísanir í leiknum á móti einni á Haukaliðið. Þó er alls ekki hægt að kenna dómurunum um tapið, því í heildina tapaði lið Akureyrar frá sér 20 boltum í þessum leik og mjög margir af þeim boltum enduðu með hraðaupphlaupum fyrir Hauka. Einnig klikkuðu 2 víti af 3 en það eru færi sem verða að klárast.
Jóhannes þjálfari leyfði mörgum stelpum sem minna hafa fengið að spreyta sig í vetur að fá nokkrar mínútur og var gaman að sjá hversu efnilegar margar þeirra eru.
Markvarsla: Emelía 7 skot (eitt víti) Lovísa 4 skot
Mörk: Arna 3 (1 víti) Lilja 3 Monika 3 Anna 2 Ester 2 Jóhanna 2 Kara 2 Unnur 1
Gangur leiksins: 0-2, 1-2, 1-5, 2-5, 2-6, 3-6, 3-7, 4-7, 4-8, 5-8, 5-9, 6-9, 6-15, 7-15, 7-17, 8-17, (8-20) 9-20, 9-21, 10-21, 10-22, 11-22, 11-25, 12-25, 12-26, 13-26, 13-29, 14-29, 14-31, 15-31, 15-33, 17-33, 17-35, 18-35, (18-36)
Næsti leikur er gegn Stjörnunni fyrir sunnan um næstu helgi. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta og styðja við bakið á stúlkunum. |