Arnór er iðinn við kolann í Danmörku
| | 1. október 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar"Okkar menn í útlandinu" - Arnór skoraði sexOkkar menn voru víða á ferðinni um helgina, hér er smáskýrsla um frammistöðu þeirra í markaskorun með sínum liðum.
- Arnór Atlason skoraði sex mörk þegar FC Kaupmannahöfn sigraði Mors-Thy 40:30 í dönsku 1. deildinni. Arnór og félagar í FCK eru efstir með fullt hús stiga.
- Árni Sigtryggsson gerði 2 mörk þegar lið hans, BM Fraikin Granollers tapaði með eins marks mun, 27:26, fyrir Keymare Almería á útivelli í spænsku 1. deildinni.
- Andrius Stelmokas skoraði eitt mark þegar Fuchse Berlin tapaði á heimavelli fyrir Rehin-Neckar-Löwen í þýsku 1. deildinni.
|