Jónatan og Þorvaldur eru búnir að skipuleggja laugardaginn
| | 22. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarTilkynning frá skipulagsnefnd meistaraflokksLaugardaginn 25. apríl n.k. mun fara fram fjölþrautarkeppni á vegum Skipulagsnefndar meistaraflokks. Um er að ræða liðakeppni og er liðskipan eftirfarandi: Gula liðið (Höddi, Óli, Hreinsi, Árni Sig) Rauða liðið (Bjössi, Jón Þór, Anton og Gestur A.) Græna liðið (Haffi,Oddur,Bjarni, Ingó) Bláa liðið (Gústi, Atli, Dóri, Gunnar A.)
Mæting í KA-heimilið stundvíslega kl 13:00. Menn þurfa að hafa með sér búnað sem samanstendur af: íþróttaskóm og fötum, hlýjum fötum, sundfötum, og keppnisskapi. Áætlað er að keppni ljúki kl. 18:00.
Mjög mikilvægt er að liðin verði með sína keppnisáætlun á hreinu og verði búin að funda minnst einu sinni fyrir n.k. laugardag. Þeir sem ekki eru skráðir en hafa áhuga á að vera með setja sig í samband við undirritaða.
Fyrir hönd skipulagsnefndar Jónatan Magnússon Þorvaldur Þorvaldsson |