Sendum Geir og Guðmundi baráttukveðjur út
| | 20. maí 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarGeir og Guðmundur farnir út með U-18 liðinuÍ morgun flugu þeir frændur Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason út til Belgíu til að leika með U-18 ára landsliði Íslands í undankeppni EM. Við höfum staðfestar upplýsingar um að liðið komst út, ekkert vesen út af öskufalli. Íslenska liðið er í riðli með Belgíu, Noregi og Úkraínu en tvö efstu liðin komast áfram í lokakeppni EM sem verður síðan í Svartfjallalandi.
Leikir Íslands verða sem hér segir:
Föstudagur 21.maí 2010 Noregur – Úkraína kl.18:00 Ísland – Belgía kl. 20:15
Laugardagur 22.maí 2010 Belgía – Noregur kl.16:30 Úkraína – Ísland kl.19:00
Sunnudagur 23.maí 2010 Ísland – Noregur kl.11:00 Belgía – Úkraína kl.13:30
Íslenski hópurinn er þannig skipaður:
Markmenn Sigurður Ingiberg Ólafsson, FH Arnar Sveinsson, HK
Aðrir leikmenn Arnar Birkir Hálfdánarson, Fram Arnar Daði Arnarsson, Haukar Árni Benedikt Árnason, Grótta Bjartur Guðmundsson, Valur Geir Guðmundsson, Akureyri Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri Ísak Rafnsson, FH Leó Pétursson, HK Magnús Óli Magnússon, FH Pétur Júníusson, Afturelding Rúnar Kristmannsson, Stjarnan Sveinn Sveinsson, Valur Víglundur Þórsson, Stjarnan Þráinn Orri Jónsson, Grótta
Þjálfari er: Heimir Ríkarðsson |