Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Frændurnir kunna vel við sig í Svartfjallalandi
17. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
U18 - íslenskur sigur á Portúgal
U-18 ára landslið karla sigraði í dag Portúgal 31-28 í fyrsta leik sínum í milliriðli um sæti 9-16. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Ísland.
Jafnræði var með liðunum fyrstu 15 mínútur leiksins en eftir það náði íslenska liðið góðum kafla og náðu 2 marka forystu sem þeir héldu út hálfleikinn. Portúgalar byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og náðu fljótlega 3 marka forystu 21-24 en þá tók íslenska liðið leikhlé og eftir það var allt annað að sjá til íslenska liðsins sem náðu að skora 5 mörk í röð og breyta stöðunni í 26-24, eftir þetta var aldrei spurning hvoru megin sigur lenti og náði íslenska liðið mest 5 marka forystu 31-26 en portúgalska liðið náði að skora 2 síðustu mörkin og leikurinn endaði því sem fyrr segir 31-28 fyrir Ísland.
Með þessum sigri hefur íslenska liðið náð að tryggja sér sigur í sínum milliriðli og þar með orðið ljóst að liðið fer í krossspil um 9-12. sætið.
Mörk Íslands skoruðu:
Geir Guðmundsson 7, Pétur Júníusson 5, Magnús Óli Magnússon 5, Leó Pétursson 3/2, Guðmundur Helgason 3, Arnar Daði Arnarsson 3, Ísak Rafnsson 2, Víglundur Þórsson 2, Sveinn Sveinsson 1.
Brynjar Darri Baldursson stóð í markinu allan leikinn og varði 15 skot.
Geir Guðmundsson var valinn maður leiksins.
Tékkar unnu Svartfellinga 38-27 þannig að Ísland er efst í riðlinum með 4 stig, Tékkar næstir með 2 stig, Portúgalir næstir með 2 stig og Svartfellingar neðstir án stiga.
Á morgun leika Íslendingar einmitt við Svartfellinga og hefst leikurinn klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson