Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Höddi fær allavega ekki spjald í Haukaleiknum!
21. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hörður Fannar verður í leikbanni gegn Haukum
Hörður Fannar Sigþórsson verður í banni í leik Akureyrar og Hauka á föstudaginn. Hörður fékk rautt spjald á lokaandartökum leiksins gegn Fram síðastliðinn laugardag þegar hann stöðvaði sókn Framara í fæðingu. Aganefnd HSÍ hefur fellt sinn dóm og eins og við var að búast fékk Hörður Fannar eins leiks bann.
Guðmundur Árni Ólafsson hinn snjalli hornamaður Hauka tekur sömuleiðis út bann í leiknum en hann fékk rautt spjald á lokasekúndum leiks Aftureldingar og Hauka síðstliðinn fimmtudag.
Á heimasíðu HSÍ er að finna svohljóðandi úrskurð aganefndar:
Fundur Aganefndar HSÍ, 19. október 2010
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Rögnvald Erlingsson og Vala Valtýsdóttir. Eftirtalin mál voru fyrir fundinum og voru afgreidd:
Guðmundur Árni Ólafsson leikmaður Hauka fékk útilokun með skýrslu vegna brots í leik Aftureldingar og Hauka í M.fl.ka. 14.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Lárus Mikael leikmaður Harðar fékk útilokun með skýrslu í leik Harðar og Stjörnunnar í M.fl.ka. 16.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Yngvi Ásgeirsson leikmaður KA 2 fékk útilokun með skýrslu í leik Fjölnis og KA 2 í 3.fl.ka. 17.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Davíð Óskarsson leikmaður ÍBV fékk útilokun með skýrslu í leik IBV og ÍR í M. fl.ka. 17.10.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Hörður Fannar Sigþórsson leikmaður Akureyrar fékk útilokun með skýrslu í leik Fram og Akureyrar í M. fl.ka. 16.10.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Önnur mál lágu ekki fyrir.
Gunnar K. Gunnarsson formaður.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson