Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það var allt á suðupunkti þegar liðin mættust í Kópavoginum í haust
25. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: HK – Akureyri bein textalýsing
Í kvöld klukkan 19:30 lýkur deildarkeppni karla með fjórum leikjum. Akureyri sækir HK heim í Digranesið og þó að liðið hafi ekki að miklu að keppa þá viljum við að sjálfsögðu fá sigur og enda þannig tímabilið á tveimur sigurleikjum. HK liðið á hins vegar möguleika á sæti í úrslitakeppninni en til þess þurfa þeir að sjálfsögðu að sigra í leiknum og einnig að treysta á að ÍR tapi fyrir Fram.
Þetta kemur allt í ljós í kvöld og jafnframt hvort það verður Valur eða Afturelding sem fellur beint í 1. deildina eða fer í umspil um úrvalsdeildarsætið.
Það var sannkölluð dramatík á lokamínútunni þegar liðin mættust í Digranesinu í haust. HK tók leikhlé þegar 40 sekúndur voru til leiksloka og freistuðu þess að innbyrða sigurinn, Akureyrarvörnin vann boltann og Heimir sendi boltann fram. HK menn náðu að brjóta á Guðmundi Hólmari þegar 7 sekúndur voru til leiksloka og Akureyri tók leikhlé.
Það skilaði sér fullkomnlega því að vörn HK opnaðist og Oddur Gretarsson stakk sér í gegn og skoraði sigurmarkið á lokaandartaki leiksins. Spurning hvort sama spenna verði í kvöld?
Oddur finnur hér leið í gegnum HK vörnina á lokasekúndunum. Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Okkar maður verður með beina textalýsingu frá Digranesinu og auðvelt að fylgjast með henni hér á síðunni. Við hvetjum stuðningsmenn á stórkópavogssvæðinu til að mæta á þennan síðasta leik tímabilsins og skemmta sér með strákunum.
Smelltu hér til að fylgjast með textalýsingunni
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson