Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Jovan var sterkur í markinu í dag
25. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tap fyrir HK í kaflaskiptum leik
Það sást strax í upphituninni í kvöld að Akureyrarliðið mætti stresslaust í leikinn staðráðið í að hafa gaman af hlutunum. Enda fóru þeir frábærlega af stað í leiknum og eftir korters leik höfðu þeir náð yfirburðastöðu, 3 – 9 og leikur þeirra verið frábær.
Heimir fór útaf og einhverra hluta vegna hrundi sóknarleikur liðsins gjörsamlega og liðið skoraði ekki mark það sem eftir var hálfleiksins. HK menn hins vegar komust í gang og skoruðu átta mörk í röð og leiddu með tveim mörkum, 11 – 9 í hálfleik.
Akureyrarliðið hóf seinni hálfleikinn með fyrstu þrem mörkunum og komst þar með yfir á ný. Þrátt fyrir að Akureyri hefði frumkvæðið var leikurinn í járnum allt til enda. HK komst yfir þegar 10 mínútur voru eftir en lokatölur urðu 23-22 fyrir HK.
Þar sem ÍR vann Fram á sama tíma varð niðurstaðan sú að röð liðanna breyttist ekkert og endar Akureyri því í 6. sæti deildarinnar að þessu sinni.
Burt séð frá seinni hluta fyrri hálfleiks var leikur Akureyrarliðisins lengst af prýðisgóður. Yngri mennirnir fengu að spreyta sig í leiknuminn, þannig átti Jón Heiðar fína innkomu í seinni hálfleiknum en hann hefur lítið fengið að spreyta sig eftir að hann kom til liðsins um áramótin.
Guðmundur Hólmar var atkvæðamikill í fyrri hálfleiknum og Geir Guðmundsson tók við merkinu í þeim seinni. Heiðar Þór lék í vinstra horninu og átti fínan leik og Jovan öflugur í markinu.
Mörk Akureyrar:
Geir Guðmundsson 5, Guðmundur Hólmar Helgason 5, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4, Bjarni Fritzson 3, Heimir Örn Árnason 2 (bæði úr vítum), Jón Heiðar Sigurðsson 2 og Halldór Tryggvason 1.
Jovan varði 16 skot í markinu og Stefán Guðnason 1.
Mörk HK:
Tandri Már Konráðsson 7, Ólafur Víðir Ólafsson 5, Bjarki Már Elísson 5 (1 úr víti), Jóhann Karl Reynisson 3, Bjarki Már Gunnarsson 1, Eyþór Már Magnússon 1 og Leó Snær Pétursson 1.
Arnór Freyr Stefánsson varði 16 skot í markinu.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson