Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Nú hefst alvaran
16. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Föstudagsleikurinn: Akureyri gegn Gorenje
Alþjóðlega æfingamótið Der Handball Champions Cup í Dessau í Þýskalandi hefst í dag með tveimur leikjum í hvorum riðli. Akureyri leikur við slóvensku mestarana í RK Gorenje Valenje klukkan 19:00 að þýskum tíma sem myndi vera klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Mótið er nú haldið í 11. sinn og í sjötta sinn sem það fer fram í bænum Dessau.
Eins og fram hefur komið hjá okkur þá taka átta lið þátt í mótinu og leikur Akureyri Handboltafélag í A-riðli ásamt Gorenje og þýsku liðunum Gummersbach og heimamönnum í Dessau Rosslauer.
Í B riðli eru þýsku liðin HSG Wetzlar og DHFK Handball Leipzig ásamt franska liðinu Saint-Raphaël og Hvít-Rússneskum meisturunum í Dinamo Minsk.
Leikirnir í A-riðli fara fram í bænum Hohenmölsen, klukkan 17:00 leika Gummersbach og Dessau Rosslauer HV en klukkan 19:00 leika Akureyri og Gorenje.
Það er ekki laust við að Akureyrarliðið verði innan um ýmsar þekktar kempur á mótinu, fyrstan skal nefna íslenska landsliðsmanninn
Arnór Atlason
sem spilar með Saint-Raphaël.
Mynd af Arnóri á heimasíðu Saint-Raphaël
Þá má búast við því að nýjasti leikmaður HSG Wetzlar taki þátt en það er enginn annar en einn albesti leikmaður heims undanfarin ár,
Ivano Balic
en hann gekk í raðir þýska liðsins síðastliðinn mánudag.
Balic komin í Wetzlar búninginn. Mynd af heimasíðu Wetzlar
Við vonumst til að úrslit leikjanna birtist á heimasíðu mótsins jafnskjótt og leikjunum lýkur, smelltu hér til að
skoða leikjaplan mótsins
.
Á laugardaginn leika síðan annarsvegar vinningsliðin úr leikjum dagsins og hins vegar tapliðin. Á sunnudaginn verður síðan leikið um sæti, og þá er hugsanlegt að Akureyri fái að glíma við Arnór Atlason eða Ivano Balic þar sem þeirra lið eru í B-riðlinum.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson