Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hvernig gengur í dag?
17. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Laugardagsleikurinn: Akureyri gegn Dessau Rosslauer
Í gær fóru fram fyrstu leikir í riðlakeppninni á Der Handball Champions Cup í Þýskalandi. Í A-riðli urðu úrslit líkt og við mátti búast, Akureyri beið lægri hlut fyrir slóvensku meisturunum í Gorenje lokatölur urðu 25-37 en við bíðum eftir frekari upplýsingum um leikinn. Í hinum leik A-riðilsins vann 1. deildarlið Gummersbach 3. deildarlið Dessau-Rosslauer með 41 marki gegn29.
Klukkan 14:00 í dag að íslenskum tíma (16:00 að þýskum) leika því Akureyri og Dessau-Rosslauer. Tveim tímum þar á eftir leika Gorenje og Gummersbach. Báðir þessir leikir fara fram í bænum Wittenberg.
Í B-riðli urðu hins vegar óvænt úrslit þar sem 2. deildar liðið DHFK Handball Leipzig sigraði 1. deildarliðið HSG Wetzlar eftir vítakeppni 32-31 en jafnt var eftir venjulegan leiktíma 29-29.
Í hinum leiknum sigraði Dinamo Minsk franska liðið Saint-Raphaël en markatalan liggur ekki fyrir á heimasíðu mótsins.
Það þýðir að í dag leika innbyrðis tapliðin, HSG Wetzlar og Saint Raphaël annarsvegar og hins vegar sigurliðin DHFK Handball Leipzig og Dinamo Minsk.
Ef Akureyri nær sigri í leiknum í dag þá eru allar líkur á að sunnudagsleikurinn verði annaðhvort gegn liði Arnórs Atlasonar eða þá Ivor Balic og félögum.
Það skýrist seinna í dag, fylgist með hér á heimsíðunni eða með því að
skoða leikjaplan mótsins
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson