Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Magnaður leikur hjá stelpunum
29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Stórsigur hjá KA/Þór gegn UMFA í kvennaboltanum
Það var mikill handboltadagur á Akureyri á laugardaginn. Á meðan Akureyrarliðið lék gegn ÍR í Austurberginu léku Hamrarnir sinn fyrsta leik í 1. deild eins og fjallað er um hér á síðunni. En jafnframt lék KA/Þór sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeild kvenna í KA-heimilinu.
KA/Þór hóf leikinn af miklum krafti og náði strax góðu forskot. Þær gáfu þó aðeins eftir í lok fyrri hálfleiks en leiddu þó með tveimur mörkum í hálfleik, 14-12. Martha Hermannsdóttir fór mikinn í sóknarleik Norðanstúlkna og spilaði stöllur sínar uppi, hvað eftir annað.
Martha var frábær í leiknum
Í seinni hálfleik var aldrei spurning um hvort liðið fær með sigur að hólmi, en KA/Þór náði strax 9 marka forskoti og eftir það var ekki aftur snúið. Fjölmargir áhorfendur leiksins sáu stúlkurnar leika við hvurn sinn fingur og ber sérstaklega að nefna frammistöðu Sunnu Pétursdóttur í marki KA/Þór en hún varði fjölmörg skot, þrátt fyrir ungan aldur.
Sunna Pétursdóttir átti stórleik í markinu
Markahæst í liði KA/Þór var Martha Hermannsdóttir með 10 mörk en Hekla Daðadóttir gerði 10 fyrir Aftureldingu.
Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 10, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3, Lilja Sif Þórisdóttir 3, Simone Antonia Pedersen 3, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2 og Klara Fanney Stefánsdóttir 1.
Sigurreifar í leikslok
Þá viljum við minna fólk á að enn er hægt að kaupa ársmiða á leiki stelpnanna. Um að gera er að setja sig í samband við einhverja stúlkuna í liðinu, þjálfara eða stjórn til þess að kaupa miða. Þeir kosta litlar 5000kr og veitir það aðgang í hálfleikskaffi á öllum 11 heimaleikjunum.
Hér er hægt að
skoða fjölmargar myndir Þóris Tryggvasonar
frá leiknum.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson