Kristján Orri og Brynjar Hólm voru markahćstir í leikjunum
| | 16. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Tveir góđir sigrar á Gróttu um helginaStrákarnir í 2. flokki stóđu fyrir sínu ţegar ţeir tóku á móti Gróttu í tveim leikjum sem um leiđ voru síđustu heimaleikir ţeirra í deildarkeppninni. Fyrri leikurinn var á laugardaginn og var býsna kaflaskiptur. Gróttumenn héldu frumkvćđinu í jöfnum leik lengst af fyrri hálfleik. Stađan var 7-9 fyrir Gróttu ţegar nokkrar mínútur voru til hálfleiks, Bjarki varđi ţá vítakast og í kjölfariđ skorađi Akureyri fjögur mörk í röđ og leiddi í hálfleik 11-9.
Ţar međ voru strákarnir komnir á flug og náđu öruggri forystu sem varđ mest sjö mörk, 21-14. Sá munur hélst meira og minna út leikinn en á síđustu mínútunum var eins og menn teldu óţarfa ađ klára leikinn og Gróttumenn gengu á lagiđ. Ţeir náđu ađ minnka muninn niđur í eitt mark, 29-28 sem urđu lokatölur leiksins. Hornamađurinn Birkir Guđlaugsson varđ fyrir ţví óláni ađ togna illa á ökkla undir lok leiksins og verđur trúlega frá einhvern tíma. Kristján Orri Jóhannsson var markahćstur heimamanna međ 8 mörk, Brynjar Hólm Grétarsson 6,Sigţór Árni Heimisson 4, Arnţór Finnsson, Friđrik Svavarsson, Kristján Sigurbjörnsson og Patrekur Stefánsson 2 mörk hver, Arnór Ţorsteinsson, Birkir Guđlaugsson og Ingvar Heiđmann 1 mark hver.
Liđin mćttust aftur í Höllinni á sunndagsmorguninn og ţađ var ljóst frá byrjun ađ strákarnir ćtluđu ekkert ađ gefa eftir. Ţeir réđu lögum og lofum á vellinum og höfđu verđskuldađa átta marka forystu í hálfleik, 17-9. Bjarki Símonarson markvörđur átti stórleik í markinu og var hreint út sagt frábćr.
Ekkert var gefiđ eftir í seinni hálfleik, Friđrik Svavarsson fékk harkalega byltu strax í upphafi hálfleiksins og ţurfti ađ yfirgefa völlinn. Strákarnir ţjöppuđu sér bara enn frekar saman og munurinn fór fljótlega í tveggja stafa tölu og lítil spenna í leiknum.
Mestur varđ munurinn fjórtán mörk, 30-16 en leiknum lauk međ öruggum ţrettán marka sigri, 36-23. Markvörđurinn Bjarki Símonarson hélt uppteknum hćtti og verđskuldar klárlega ađ vera valinn mađur leiksins en annars á allt liđiđ hrós skiliđ fyrir frábćran leik. Bjarki Símonarson lokađi markinu í dag Brynjar Hólm Grétarsson reyndist Gróttumönnum illviđráđanlegur í leiknum, skorađi 13 mörk, Arnţór Finnsson 5, Arnór Ţorsteinsson, Garđar Jónsson, Halldór Harđarson og Kristján Sigurbjörnsson 3 mörk hver, Sigţór Árni Heimisson 2, Friđriki Svavarsson, Ingvar Heiđmann, Kristján Orri Jóhannsson og Patrekur Stefánsson 1 mark hver.
Stađa strákanna í deildinni er býsna góđ eftir helgina en nú eru eftir ţrír útileikir, gegn Aftureldingu, Haukum og loks toppliđi Vals. |