Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Tomas stóð sig vel í markinu fyrir aftan góða vörn27. ágúst 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarNorðlenska: Fram lagði Akureyri á lokamínútunni Akureyri tók á móti Fram á fyrsta leikdegi Opna Norðlenska mótinu sem fer fram þessa dagana í Höllinni á Akureyri. Leikurinn var nokkuð sveiflukenndur og skiptust liðin á að taka spretti í markaskorun en gestirnir þó ávallt með yfirhöndina. Þegar lokamínútan hófst var jafnt en Framarar skoruðu síðasta markið og unnu 25-26. Gestirnir í Fram byrjuðu leikinn betur og komust í 0-2 áður en sókn Akureyrar komst í gang og jafnaði í 2-2. Liðin skiptust svo á að skora næstu mínúturnar, en markverðir beggja liða tóku nokkra góða bolta. Framarar náðu svo að skora þrjú mörk í röð um miðbik hálfleiksins þar sem þeir refsuðu með hraðaupphlaupum eftir góðar varnir. Kristján Orri minnkaði muninn strax niður í eitt mark á ný með tveimur mörkum en aftur gáfu gestirnir í og náðu forskotinu upp í fimm mörk. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu gestirnir yfir 11-15 og var staðan verðskulduð. Sóknarleikur Akureyrar gekk brösuglega á meðan Framararnir náðu yfirleitt marki úr hraðaupphlaupum og seinni bylgju, varnarleikur Akureyrar stóð þó fínt þegar náðist að stilla upp í vörn og Tomas varði vel í markinu. Síðari hálfleikinn hófu okkar menn af miklum krafti og eftir sjö mínútna leik var staðan orðin jöfn 16-16. Bæði stóð vörnin mjög vel og liðið keyrði vel í bakið á Frömurunum þá voru gestirnir iðnir við að láta reka sig útaf sem Akureyri nýtti sér vel. En þá kviknaði aftur á gestunum og þegar kortér lifði leiks var forskotið aftur orðið þrjú mörk. Enn svöruðu okkar menn og komu forskotinu niður í eitt mark en ekki leið á löngu uns Framarar höfðu náð því aftur upp í þrjú mörk, staðan 20-23 og rúmar sjö mínútur til leiksloka. Aftur kom sveifla með okkar liði og þegar ein og hálf mínúta var eftir var staðan orðin jöfn 24-24 og aftur í 25-25 þegar tæp mínúta lifði leiks. Framarar skoruðu heppnismark en skotið hrökk af vörninni og yfir Tomas í markinu, ekki tókst okkar mönnum að nýta sína síðustu sókn og því 25-26 sigur gestanna staðreynd. Eilítið svekkjandi tap raunin eftir að hafa jafnað leikinn í tvígang undir lokin en þegar litið er yfir leikinn áttu Framarar sigurinn líklegast skilið, þeir leiddu allan leikinn og gerðu minna af mistökum. Lið Fram er líklega komið lengra í sínum undirbúning og þá sést greinilega að skarðið sem Sigþór Árni skilur eftir sig í sókn Akureyrar er stærra en hann er í loftinu. Vörn Akureyrar var flott heilt yfir í leiknum og Tomas góður í markinu, það er ljóst að varnarleikurinn verður mikilvægur hjá okkar mönnum í vetur eins og reyndar oft áður. Sóknin var fín á köflum en þarf að slípa betur til en eins og kom fram áðan vantar Sigþór Árna í leiksstjórnandann sem að sjálfsögðu hefur áhrif á flæði spilsins. Bergvin átti fínan leik á miðjunni og náði að opna vel fyrir samherja sína, átti nokkrar góðar stoðsendingar en skotógnunin af honum er ekki mikil sem auðveldar varnarvinnu andstæðinganna. Kristján Orri er auðvitað orðinn frábær hornamaður og nýtti sín færi vel að vanda. Þá var gaman að sjá Andra Snæ aftur á vellinum en hann hefur ekki leikið fyrir Akureyri í langan tíma vegna meiðsla en hann skoraði nokkur góð mörk í vinstra horninu. Brynjar Hólm átti ágætisleik í vinstri skyttunni og Hörður hin nýja hægri skytta Akureyrar stóð sig fínt. Innkoma Harðar í liðið getur reynst dýrmæt eftir því sem hann kemst betur í takt við liðið enda vantaði sárlega örvhentan mann í hópinn. Heimir Örn Árnason sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil dæmdi leikinn ásamt Sigurði Þrastarssyni en Heimir undirbýr sig nú fyrir sitt fyrsta tímabil sem dómari og ljóst að hann er efnilegur á þeim vettvangi.Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 9 (4 úr vítum), Andri Snær Stefánsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Hörður Másson 3, Halldór Logi Árnason 2, Róbert Sigurðsson 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1. Tomas Olason varði 13 skot í markinu.
Mörk Fram: Ólafur Ægir Ólafsson 5, Garðar B. Sigurjónsson 5 (öll úr vítum), Sigurður Örn Þorsteinsson 4, Stefán Darri Þórsson 3, Þorgrímur Smári Ólafsson 3, Ólafur Magnússon, Ragnar Þór Kjartansson, Óðinn, Arnar Freyr Arnarsson, Arnar Freyr Ársælsson, Arnar Snær Magnússon 1 mark hver.Kristófer Guðmundsson varði 12 skot í leiknum.
Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook