Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Þrándur og félagar í Mosó hafa unnið báða leikina á Opna Norðlenska
28. ágúst 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Norðlenska: Afturelding lagði Fram
Afturelding og Fram mættust á öðrum leikdegi Opna Norðlenska mótsins sem haldið er í Höllinni. Það má með sanni segja að Mosfellingar hafi verið sterkari aðilinn í leiknum en þeir náðu fljótlega góðu forskoti og héldu því allan leikinn, lokatölur 23-26.
Áður höfðu Mosfellingar lagt Gróttu að velli 28-25 að Varmá en liðin ákváðu að mætast þar áður en þau lögðu í ferðalagið norður.
Afturelding lék öflugan varnarleik og agaðan sóknarleik á meðan Framarar sem höfðu lagt Akureyri að velli í gær voru mistækir sóknarlega og ekki nægilega beittir varnarlega. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður leiddu Mosfellingar 3-9 en þá hafði Pálmar í marki þeirra varið 7 skot.
Framarar náðu aðeins að átta sig fyrir lok hálfleiksins en þó ekki betur en svo að hálfleikstölur voru 7-13 og nokkuð ljóst að Mosfellingar voru að fara að ná sínum öðrum sigri á mótinu.
Síðari hálfleikur var þó mun betri hjá Frömurum og náðu þeir að minnka muninn í tvö mörk eftir að hafa skorað 5 mörk í röð. En þá gáfu Mosfellingar aftur í og héldu 3-5 marka forskoti út leikinn og á endanum fóru leikar 23-26 Aftureldingu ívil.
Virkilega sanngjarn sigur Aftureldingar staðreynd, mestallan leikinn spiluðu þeir öfluga vörn og árangursríkan sóknarleik en þó komu kaflar þar sem liðið gaf eftir. Framarar voru arfaslakir í fyrri hálfleik en sýndu fínan karakter að koma sér aftur í leikinn í þeim síðari og ljóst að þeir geta gert fína hluti í vetur.
Mörk Fram:
Ragnar Kjartansson 5 (4 úr vítum), Þorgrímur Smári Ólafsson 4, Óðinn 4, Garðar Benedikt Sigurjónsson 3, Ólafur Jóhann Magnússon 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Sigurður Örn Þorsteinsson 2 og Stefán Darri Þórsson 1 mark.
Í markinu varði Kristófer Fannar Guðmundsson 12 skot og Valtýr Már Hákonarson 1 skot.
Mörk Aftureldingar:
Jóhann Jóhannsson 8 mörk, Böðvar Páll Ásgeirsson 6, Magnús Friðrik Einarsson 2, Gestur Ingvarsson 2, Ágúst Birgisson 2, Bjarki Lárusson 1, Gunnar Malmquist 1, Bjarki Kristinsson 1, Guðni Már Kristinsson 1, Pétur Júníusson 1 og Þrándur Roth Gíslason 1 mark.
Í markinu varði Pálmar Pétursson 17 skot.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson