Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Kristján Orri stóð sig fínt gegn sínu gömlu félögum
28. ágúst 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Norðlenska: Grótta hafði Akureyri í jöfnum leik
Akureyri tók á móti Gróttu í seinni leik dagsins í Opna Norðlenska mótinu, bæði lið töpuðu leik sínum í gær og því mikilvægt fyrir bæði lið að sækja sigur í leiknum. Eftir hörkuleik þar sem gestirnir af Seltjarnarnesinu leiddu mestallan tímann fóru gestirnir með sigur af hólmi 31-32.
Bæði lið byrjuðu leikinn af krafti sóknarlega og var jafnt á öllum tölum á upphafsmínútunum. Smá bit vantaði í varnarleikinn og var því markaskor nokkuð hátt. Gestirnir voru aðeins sneggri að átta sig og komust í þriggja marka forskot þegar lítið var til hálfleiks. En sterkur endasprettur Akureyrar sá til þess að hálfleikstölur voru 16-16.
Síðari hálfleikur spilaðist einkar svipað og sá fyrri, Gróttumenn leiddu leikinn en Akureyri aldrei langt undan. Þegar um kortér var eftir leiddu gestirnir 21-24, Akureyri náði nokkrum sinnum að minnka muninn niður í eitt mark en alltaf náðu Gróttumenn að koma í veg fyrir jöfnunarmarkið og svo fór að þeir sigruðu 31-32.
Slakur leikur af hálfu Akureyrar og ljóst að liðið á enn eitthvað í land en æfingaleikir eru til að sjá og slípa liðið til þannig að vonandi tekst það áður en Íslandsmótið hefst.
Gróttuliðið sýndi í dag að liðið er vel leikandi og mun klárlega standa sig fínt í efstu deild, þeir sem hafa verið að spá Gróttu beint niður aftur þurfa líklega að éta það ofan í sig.
Mörk Akureyrar:
Kristján Orri Jóhannsson 10 (4 úr vítum), Brynjar Hólm Grétarsson 4, Bergvin Þór Gíslason 4, Hörður Másson 4, Róbert Sigurðarson 4, Heiðar Þór Aðalsteinsson 3, Friðrik Svavarsson 1 og Andri Snær Stefánsson 1 mark.
Í markinu varði Bjarki Símonarson 6 skot og Tomas Olason 4 skot.
Mörk Gróttu:
Finnur Stefánsson 12 (6 úr vítum), Aron Dagur Pálsson 7, Árni Árnason 4, Aron Heiðar Guðmundsson 4, Júlíus Stefánsson 1, Þórir Jökull Finnbogason 1, Aron Valur Jóhannesson 1 og Guðni Ingvarsson 1 mark.
Í markinu varði Lárus Gunnarsson 11 skot og Stefán Huldarson 1 skot.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson