Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hreiðar kom sterkur inn í fyrsta leik sínum fyrir Akureyri eftir endurkomuna17. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarÞegar Hreiðar Levý sneri aftur til Akureyrar Hreiðar Levý Guðmundsson sneri aftur til liðs við Akureyri Handboltafélag tímabilið 2014-2015 en kappinn hafði verið að kljást við meiðsli og lék því sinn fyrsta leik þann 5. febrúar 2015 þegar Akureyri tók á móti hans gamla liði ÍR. Hreiðar kom sterkur inn í markið í síðari hálfleik og tók nokkra góða bolta í 23-23 jafntefli liðanna. Næsti leikur Akureyrar er einmitt einnig heimaleikur gegn ÍR en hann fer fram á fimmtudaginn. Hreiðar er búinn að vera magnaður í marki Akureyrar á tímabilinu en kappinn er kominn í toppform og farinn að banka allhressilega á landsliðsdyrnar. Sjónvarpsmenn RÚV gripu Hreiðar í viðtal eftir fyrsta leikinn og ræddu aðeins við hann um formið og hvert hann stefndi eftir að hafa náð sér góðum af meiðslunum.VIDEO Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook