Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Íslandsmeistarar Hauka eru erfiðir heim að sækja15. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri sækir Haukana heim á mánudaginn Akureyri sækir Íslandsmeistara Hauka heim á mánudaginn klukkan 19:00. Bæði lið hafa verið á hörku siglingu að undanförnu en Haukarnir unnu meðal annars topplið Vals á föstudaginn og geta með sigri tyllt sér á toppinn. Akureyri hefur hinsvegar unnið 5 af síðustu 7 leikjum sínum eftir erfiða byrjun og er að klífa upp deildina, það má því búast við hörkuleik. Haukar fóru illa með Akureyri þegar liðin mættust í KA-Heimilinu í 4. umferð Olís deildarinnar í september en Akureyri vann hinsvegar góðan 5 marka sigur þegar liðin mættust síðast að Ásvöllum. Myndband frá leik liðanna að Ásvöllum undir lok síðasta tímabils má sjá hér að neðan:VIDEO Janus Daði Smárason fór mikinn þegar Haukar unnu Val á föstudaginn en hann gerði 13 mörk á sama tíma og Giedrius Morkunas varði eins og berserkur í markinu en hann lék einmitt lykilhlutverk þegar Haukar urðu Íslandsmeistarar. Elíasi Má Halldórssyni má svo ekki gleyma en þessi fyrrum leikmaður Akureyrar hefur verið gríðarlega stór hluti af upprisu Haukanna og ljóst að strákarnir þurfa að hafa góðar gætur á fyrrum liðsfélaga sínum til að eiga möguleika á sigri á morgun. Við hvetjum alla Akureyringa fyrir sunnan til að mæta á leikinn og styðja liðið til sigurs, áfram Akureyri! Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook