Í gær fór fram lokahóf Akureyrar Handboltafélags en hófið var haldið í KA-Heimilinu að þessu sinni. Að venju voru nokkrir leikmenn verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu. Hófið var haldið ásamt kvennaliði KA/Þórs og var Hannes Karlsson með myndavélina á lofti.
Verðlaunahafar Akureyrar Handboltafélags.
Verðlaunahafar kvennaliðs KA/Þórs ásamt þjálfurum liðsins.
Bergvin Þór Gíslason var valinn besti leikmaður liðsins en Beggi átti gott tímabil og lék lykilhlutverk í bæði sókn og vörn.
Róbert Sigurðarson var valinn efnilegastur en Robbi sýndi magnaða takta hjarta varnarinnar og uppskar einnig verðlaunin sem besti varnarmaður liðsins.
Kristján Orri Jóhannsson var valinn besti sóknarmaðurinn en hann var markahæsti leikmaður liðsins með 143 mörk á tímabilinu.
Patrekur Stefánsson var valinn sá besti í 2. flokk og sést hér taka við verðlaunum sínum en markvörðurinn Arnar Þór Fylkisson var valinn sá efnilegasti. Patrekur var í hóp í 7 leikjum með meistaraflokk í vetur og Arnar í einum leik.