Sigþór Gunnar Jónsson var markahæstur Akureyringa í dag
| | 9. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri U með þriggja marka sigur á Val UUngmennalið Akureyrar vann í kvöld góðan útisigur á Ungmennaliði Vals í 1. deild karla. Heimamenn í Val voru einu marki yfir í hálfleik 13-12 en Akureyrarliðið kom sterkt til baka í seinni hálfleiknum og unnu magnaðan þriggja marka sigur 22-25.
Við höfum reyndar ekki miklar upplýsingar ennþá um gang leiksins en þetta var virkilega magnaður sigur hjá strákunum, ekki síst í ljósi þess að það voru fyrst og fremst yngri strákarnir sem mönnuðu liðið í dag.
Mörk Akureyrar U: Sigþór Gunnar Jónsson 7, Heimir Pálsson 5, Jóhann Einarsson 5, Dagur Gautason 3, Hafþór Már Vignisson 3, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 2, Elvar Reykjalín Helgason 1 og Kristján Helgi Garðarsson 1. Í markinu stóðu Ásgeir Kristjánsson og Björgvin Helgi Hannesson.
Mörk Vals U: Markús Björnsson 7, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 6, Ásgeir Snær Vignisson 3, Sigurvin Jarl Ármannsson 2, Sturla Magnússon 2, Alexander Jón Másson 1 og Tjörvi Týr Gíslason 1. |