Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Jóhann Einarsson stóð fyrir sínu gegn Víkingum18. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarMagnað Ungmennalið mátti sætta sig við tap Víkingar, eitt af toppliðum 1. deildarinnar var í heimsókn hjá Ungmennaliði Akureyrar í gær. Akureyrarstrákarnir mættu galvaskir til leiks og tóku strax frumkvæðið í leiknum, komust í 4-2, 6-3 og 8-4. Víkingar virtust ráðalitlir gegn baráttuglöðum Akureyringum og ekki spillti fyrir að Ásgeir Kristjánsson átti stórleik í markinu. Fjörið hélt áfram og Akureyri leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 13-9. Strákarnir náðu að halda Víkingum frá sér framan af seinni hálfleik, staðan varð 16-12 og seinna 18-15. Í kjölfarið náðu Víkingar að vinna upp forskotið, hópur Akureyrarliðsins var fámennur, einungis tveir skiptimenn og mögulega hefur þreyta og einbeitingarleysi valdið því að sóknin tapaði nokkrum boltum sem gaf Víkingum nokkur hraðaupphlaup og í kjölfarið náðu þeir að jafna í 19-19. Í kjölfarið komust Víkingar yfir í 20-21 og voru sterkari allra síðustu mínútur leiksins og sigruðu að lokum 22-25. Vissulega sárt að fá ekkert út úr leiknum eftir að hafa verið með yfirhöndina mestallan tímann en strákarnir geta vissulega verið stoltir af frammistöðunni.Mörk Akureyrar U: Heimir Pálsson 5, Jóhann Einarsson 5, Hafþór Már Vignisson 4, Vignir Jóhannsson 4, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1, Ásgeir Kristjánsson 1, Dagur Gautason 1 og Kristján Helgi Garðarsson 1 mark. Ásgeir Kristjánsson sá einn um markvörsluna og var að öðrum ólöstuðum maður leiksins. Nú tekur við hlé hjá strákunum í 1. deildinni, þó ekki eins langt og í Olís deildinni. Akureyri U á heimaleik gegn Ungmennaliði Stjörnunnar þann 8. janúar. Reyndar á 2. flokkur Akureyrar leik í bikarkeppni 2. flokks mánudaginn 19. janúar klukkan 18:15 en þá mætir 2. flokkur Aftureldingar í Íþróttahöllina. Allir strákarnir sem spiluðu gegn Víkingum eru einnig gjaldgengir í 2. flokk og því má búast við að svipuðum hópi í þeim leik. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook