Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Aron Tjörvi var drjúgur í markaskoruninni
24. janúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tap hjá Ungmennaliðinu gegn Þrótti
Það var fáliðaður hópur Ungmennaliðs Akureyrar sem sótti Þróttara heim á laugardaginn í 1. deild karla. Að þessu sinni var ekki fyrir hendi að stilla upp sterkasta liðinu af ýmsum ástæðum. Meistaraflokkurinn var til dæmis bundinn í tveim æfingaleikjum og því spiluðu engir þeirra með að þessu sinni. Auk þess sem meiðsli og önnur forföll hindruðu aðra til þátttöku í leiknum.
Strákarnir áttu erfiðan fyrri hálfleik og ekki bætti úr skák að Vignir Jóhannsson fékk að líta beint rautt spjald um miðjan fyrri hálfleikinn. Þróttur var tíu mörkum yfir í hálfleik, 17-7 og úrslitin eiginlega ráðin.
En strákarnir sýndu frábæran karakter í seinni hálfleiknum og unnu hann raunar með fjórum mörkum sem dugði þó ekki til þannig að niðurstaðan var sex marka tap, 32-26.
Mörk Akureyrar:
Heimir Pálsson 9, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 6, Jón Heiðar Sigurðsson 6, Jóhann Einarsson 2, Kristján Helgi Garðarsson 2 og Finnur Salvar Geirsson 1 mark.
Ásgeir Kristjánsson stóð vaktina í markinu í fyrri hálfleik en Páll Snævar Jónsson stóð vaktina með mikilli prýði í seinni hálfleiknum.
Næstu þrír leikir Ungmennaliðsins eru heimaleikir, fyrst gegn HK þann 11. febrúar. Raunar er það svo að liðið á eftir sjö leiki og þar af eru sex heimaleikir.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson