Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það er aldrei lognmolla í kringum leikina gegn Val
11. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Risaleikur gegn Val
Það er óhætt að segja að Akureyri eigi risaheimaleik í Olís deild karla í dag þegar nýkrýndir bikarmeistarar Vals mæta til leiks. Akureyri þarf nauðsynlega á stigunum að halda í harðri baráttu á botni deildarinnar og næsta víst er að Valsmenn munu ekkert gefa eftir en þeir eru að berjast um að enda í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar.
Akureyri tapaði með einu marki í vægast sagt dramatískum útileik gegn FH í síðustu umferð en vann góðan sigur á Aftureldingu nokkrum dögum áður. Valur tapaði tveim síðustu leikjum sínum í Olís deildinni, báðum á heimavelli, síðast gegn Stjörnunni og þar áður fyrir FH.
Akureyri og Valur mættust í KA heimilinu þann 2. febrúar og var sá leikur fjörugur. Akureyri leiddi með einu marki í hálfleik, 13-12 en vann að lokum sannfærandi sigur 27-21. Ekki er að efa að heimamenn hafa hug á að endurtaka þann leik og er óskað eftir öflugum stuðningi áhorfenda í þeirri baráttu.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Akureyri-TV,
SMELLTU HÉR TIL AÐ FYLGJAST MEÐ ÚTSENDINGUNNI
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson