Heimir Pálsson og Hafþór Vignisson voru markahæstir gegn ÍR
| | 12. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarÍR var of stór biti fyrir UngmennaliðiðStrákarnir í Ungmennaliði Akureyrar léku útileik á föstudagskvöldið gegn ÍR. Fyrirfram var vitað að leikurinn yrði erfiður enda hafa ÍR ingar verið að ná vopnum sínum eftir erfiða byrjun í vetur og eru nú komnir í næstefsta sæti deildarinnar.
Nokkrir leikmenn Ungmennaliðsins leika einnig með meistaraflokki Akureyrar. Meistaraflokkurinn átti mikilvægan leik gegn Val á laugardeginum þannig að þeir sem höfðu verið valdir í hópinn gegn Val fóru ekki með í ÍR leikinn. Tveir ungir og efnilegir leikmenn, Jóhann Geir Sævarsson og markvörðurinn Magnús Már Sigurðarson þreyttu frumraun sína með Ungmennaliðinu í ferðinni.
En þeir sem skipuðu liðið mættu klárir í slaginn og staðráðnir í að njóta leiksins og leggja inn í reynslubankann. ÍR-ingar héldu upp á 110 ára afmæli félagsins um helgina og má segja að leikurinn hafi verið upphaf hátíðarhaldanna.
ÍR leiddi í hálfleik með fimm mörkum, 16-11 og bættu um betur í seinni hálfleiknum þannig að lokatölur urðu 35-24.
Mörk Akureyrar U: Hafþór Már Vignisson 5, Heimir Pálsson 5, Jóhann Einarsson 3, Arnór Þorri Þorsteinsson 2, Garðar Már Jónsson 2, Kristján Helgi Garðarsson 2, Sigþór Gunnar Jónsson 2, Birkir Guðlaugsson 1 og Jón Heiðar Sigurðsson 1 mark.
Mörk ÍR: Jón Kristinn Björgvinsson 9, Daníel Ingi Guðmundsson 7,Úlfur Gunnar Kjartansson 5, Davíð Georgsson 3, Aron Örn Ægisson 2, Halldór Logi Árnason 2, Sveinn Andri Sveinsson 2, Valþór Atli Garðarsson 2, Eggert Sveinn Jóhannsson 1, Ingólfur Arnar Þorgeirsson 1 og Sigurður Óli Rúnarsson 1.
Næsti leikur Ungmennaliðsins er sannkallaður stórleikur, heimaleikur gegn Hömrunum og verður honum gerð skil síðar. |