Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Farsímaútgáfa
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Garðar og Sigþór eru meðal fjölmargra leikmanna í sögu Ungmennaliðsins
7. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Stjarnan U - Akureyri U
Það er komið að lokaumferð 1. deildar karla sem er leikin í dag. Ungmennalið Akureyrar heldur í Garðabæinn og mætir þar Ungmennaliði Stjörnunnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 í TM Höllinni, sem hér á árum áður var kölluð Mýrin.
Liðin mættust hér á Akureyri í byrjun janúar og lauk þeim leik með jafntefli, 27-27 þar sem Stjarnan jafnaði á lokasekúndum leiksins en Akureyrarliðið hafði haft býsna örugga forystu mestallan leikinn.
Fyrir leikinn í dag er Stjarnan U í 8. sæti deildarinnar með 19 stig en Akureyri U í 9. sæti með 18 stig. Þannig að leikurinn sker úr um það hvort liðið hafnar í 8. sætinu. Akureyrarliðið þarf sigur til að vinna sætið.
Sigurreifir piltar eftir sigurinn á KR í síðustu umferð
Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga kost á því að mæta á leikinn og styðja strákana. Þeir hafa sýnt og sannað í vetur að þeir eru reynslunni ríkari af þátttöku í fullorðinna manna deild.
Öll lokaumferðin er leikin á sama tíma og rétt að benda Akureyringum á að Hamrarnir eiga heimaleik í KA heimilinu þar sem þeir mæta Þrótti Reykjavík. Hamrarnir sem sitja í 11. sæti eiga með sigri möguleika á að vinna sig upp í 10. sætið. Þróttur er fyrir leikinn í 6. sæti og með sigri gætu þeir átt möguleika á að komast í umspil um Olís-deildarsæti að því gefnu að önnur úrslit verði þeim hagstæð. Það má því búast við spennandi leik hjá Hömrunum í kvöld.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson