Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bæjarmerki Akureyrar verður á búningi nýja félagsins

20. ágúst 2006 - SÁ skrifar 

Annað tap í Danmörku (Uppfært)

Akureyri spilaði annan leik Danmerkurferðarinnar í dag en núna spilaði liðið gegn HIK. Eftir afar slæman leik á föstudaginn var kominn krafa á betri leik núna enda til lítils að fara í æfingaferðir ef þær eru ekki notaðar til að taka framförum. Liðið er enn að slípast saman og átti engan stjörnuleik í dag en spilamennskan var þó í lagi. Jafnræði var lengst af í fyrri hálfleiknum gegn HIK og staðan jöfn í hálfleik 12-12. Akureyrar liðið varð fyrir áfalli undir lok hálfleiksins þegar Magnús Stefánsson meiddist á ökkla en eftir á að koma í ljós hvort að meiðslin séu alvarleg. Í seinni hálfleik var ávallt lítill munur milli liðanna og unnu Danirnir að lokum eins marks sigur á Akureyri.

Annað tap og hefði maður viljað sjá annað gegn neðri deildar liði frá Danmörku. Hins vegar verður að taka með í reikninginn að liðið er að spila saman í fyrsta skipti þessa dagana og þessir leikir því mjög mikilvægir fyrir liðið. Mikilvægast er að taka framförum og að liðið komi saman í svona ferðum.

(Uppfært) Eftir að hafa farið á sjúkrahús kom í ljós að Magnús Stefánsson er ekki alvarlega meiddur í ökklanum og allt heilt. Óvíst er hvort að hann getur leikið síðustu tvo leiki ferðarinnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson