Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Þrjú töp en þó stígandi í liðinu

22. ágúst 2006 - SÁ skrifar 

Þriðja tapið í Danmörku

Akureyri lék þriðja og seinasta leik Danmerkurferðarinnar í gær en mótherjarnir voru Lyngby HK. Þrátt fyrir tap í leikjunum tveimur á undan hafði verið stígandi í liðinu og hélt hann áfram í dag. Liðið, sem var án Magnúsar Stefánssonar í leiknum, var oft í fyrri hálfleik að gera flotta hluti en liðu gríðarlega fyrir slaka markvörslu í leiknum og aðeins eitt skot varið fyrstu 27 mínúturnar. Því lenti liðið strax nokkuð undir og munurinn 6 mörk í hálfleik, 17-11.
Í seinni hálfleik kom markvarslan og komst Akureyri þá nær Dönunum. Margt jákvætt var í spilamennsku liðsins í seinni hálfleiknum en leikurinn var ansi kaflaskiptur eins og hinir tveir. Að lokum unnu Danirnir 28-24 en Akureyri komst þó nær Lyngby HK en það.

Ansi mikill stígandi þótti vera í liðinu í þessari ferð og náðu menn alltaf meira og meira saman eftir því sem á leið. Það er náttúrulega klárt að þegar tvö lið eru sett saman í eitt þá er erfitt að ná saman til að byrja með og var sú raunin í þessari ferð. Það batnaði hins vegar mikið og liðið að spila fínasta handbolta að hluta til í þessum leik og leiknum deginum áður. Þá verður einnig að taka með í reikninginn að danska deildin byrjar mánuði fyrr en sú íslenska og Danirnir því mun lengra komnir í sínum undirbúningi,

Meira um Danmerkurferðina mun koma á morgun hér á KA-sport.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson