Nýja liðið kynnt á Vélsmiðjunni kl: 20:30 fimmtudaginn næsta. Allir áhugamenn um handbolta eru hvattir til að mæta
| | 26. september 2006 - SÁ skrifar
Kynningarfundur Akureyrar næsta fimmtudagNæstkomandi fimmtudagskvöld verður Akureyri Handboltafélag með leikmanna- og liðskynningu á Vélsmiðjunni klukkan 20:30, bæði fyrir karla og kvennaliðið. Allir eru velkomnir á kynningu hins nýja liðs en léttar veitingar verða í boði. Þjálfarar munu fara yfir væntingar fyrir veturinn og kynna deildina í vetur. Nýir búningar verða kynntir ásamt því að samningar verða undirritaðir við stærstu sponsora liðanna í vetur. Þá verður opnuð ný heimasíða fyrir Akureyri Handboltafélag.
Heimasíðan hvetur fólk eindregið að mæta og kynna sér nýja liðið. Þetta er lið bæjarins og fátt meira tilvalið fyrir fólk að kynna sér það. |