Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Aigars Lazdins leikur með Akureyri og þjálfar 2. flokk félagsins

29. september 2006 - SÁ skrifar 

Aigars: Allir geta unnið alla

Það er aðeins einn dagur í sjálft Íslandsmótið. Við tókum viðtal við Aigars Lazdins, aldursforseta liðsins, og spurðum hann nokkurra spurninga. Aigars hefur spilað með Þór í mörg ár og er seigasti leikmaður sem hefur spilað á Íslandi í langan tíma. Gaman verður að sjá hvernig hann kemur út með liðinu í vetur.

SÁ: Þá er tímabilið að byrja, hvernig sérðu það fyrir þér?
Aigars: Mér hefur fundist við vinna vel seinustu mánuði og verið að gera okkar besta. Öll liðin í deildinni eru mjög svipuð að getu og verða að sýna það á vellinum hvort er betra.

SÁ: Ertu ánægður með undirbúningstímabilið?
Aigars: Já, ég er sáttur. Við höfum verið að vinna mjög vel. Við erum í góðu formi en söknum Hreiðars markmanns aðeins en þeir ungu leggja sig alltaf vel fram.

SÁ: Ert þú sjálfur í góðu formi?
Aigars: Já, ég er að komast í gott form.

SÁ: Þú hefur verið á Akureyri í fimm ár, hvernig finnst þér bærinn?
Aigars: Mér líkar vel við Akureyri. Bærinn er ekki of stór, 16.000 íbúar og það er mjög gott að búa hérna.

SÁ: Liðinu var spáð 6. sæti. Heldur þú að Akureyri verði í því sæti, ofar eða neðar?
Aigars: Ég held satt besta að segja að öll liðin geti verið númer 1 og öll númer 8, þetta er svo jöfn deild. Það sést vel á því að ÍR vinnur Hauka örugglega. Liðin verða bara að sýna á vellinum hverjir eru bestir en mér finnst við vera líklegt að við verðum í fjórða til fimmta sæti.

SÁ: Það eru Valsmenn núna á laugardaginn (á morgun). Hvernig leggst það verkefni í þig?
Aigars: Þetta verður erfiður leikur, við erum á útivelli á móti Val sem eru líklegir til að vinna deildina í ár. Allir verða taugaóstyrkir og það lið sem gerir færri mistök vinnur.

Heimasíðan þakkar Aigars innilega fyrir spjallið og óskar honum góðs gengis. Meira er svo væntanlegt í sambandi við Akureyrarar liðið hér á síðuna í dag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson