Hreiðar Levý mun spila á stærsta handboltamóti til þessa
| | 15. janúar 2007 - SÁ skrifar
Hreiðar Levý í lokahópnum fyrir HMStærsta HM frá upphafi verður haldið í Þýskalandi í þessum mánuði en mótið byrjar 19. janúar. Íslendingar hefja hins vegar leik 20. janúar en þá leika þeir gegn Ástralíu. Alfreð Gíslason hefur valið þá 17 leikmenn sem fara með íslenska landsliðinu til Þýskalands og meðal þeirra sem voru valdir er okkar maður Hreiðar Levý Guðmundsson. Það er gríðarleg viðurkenning fyrir Hreiðar að vera valinn í þennan hóp en eins og áður kom fram er þetta stærsta handboltamót fyrr og síðar.
Lokahópurinn fyrir HM í Þýskalandi er eftirfarandi:
Markverðir Birkir Ívar Guðmundsson, N-Lübbecke Roland Valur Eradze, Stjörnunni Hreiðar Levý Guðmundsson, Akureyri
Útileikmenn Guðjón Valur Sigurðsson, Gummersbach Alexander Petersson, Grosswallstadt Einar Örn Jónsson, Minden Ásgeir Örn Hallgrímsson, Lemgo Logi Geirsson, Lemgo Arnór Atlason, FCK Snorri Steinn Guðjónsson, Minden Ragnar Óskarsson, Ivry Ólafur Stefánsson, Ciudad Real Róbert Gunnarsson, Gummersbach Sigfús Sigurðssoon, Ademar León Vignir Svavarsson, Skjern Sverre Jakobsson, Gummersbach Markús Máni Michaelsson, Val
|