Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ester í baráttunni á föstudaginn

10. september 2007 - BHB skrifar

Jafntefli í fyrsta leik kvennaliðs Akureyrar

Fyrsti leikur kvennaliðs Akureyrar á undirbúningstímabilinu var spilaður á föstudagskvöldið gegn liði FH. Leikurinn er liður af Kaffi-Ak mótinu en í þetta skiptið mætti einungis eitt kvennalið til leiks fyrir utan stelpurnar okkar og mætast því þessi lið þrisvar sinnum, seinni tveir leikirnir voru spilaðir á laugardaginn kl. 12:00 og 16:00.

Leikurinn var mjög jafn og ágætis skemmtun, aldrei munaði meira en tveim mörkum á liðunum. Staðan í hálfleik var 12-12. Stelpurnar mættu svo sterkar inn í síðari hálfleikinn, þéttu vörnina og spiluðu af miklum krafti, þær höfðu allan tíman frumkvæðið og leiddu leikinn alveg þar til í lokinn en leikurinn endaði 23-23.

Sérstaklega var gaman að fylgjast með hvernig ungu stelpurnar í liðinu stigu upp og spiluðu mjög vel en liðið hefur orðið fyrir skakkaföllum því fyrirliðinn okkar frá í fyrra Guðrún, systir hennar Erla og Jarmila eru því miður ekki með okkur í ár. Guðrún fluttist suður og spilar núna með liði FH, hún stóð sig mjög vel í leiknum í gær. Erla þurfti hinsvegar að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.

Þó má segja að það hafi verið haustbragur á leik beggja liða og greinilegt er að það á eftir að fínpússa nokkra hluti fyrir tímabilið, sem hefst núna á fimmtudaginn með útileik gegn liði Vals.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson