Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfrćđi  -  Höllin  -  Lagiđ  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilabođ - Vefur KA - Vefur Ţór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Nćstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Ţri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Miđ. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin stađan

Ungmennaliđ karla
Nćstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin stađan




    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Magnús kann vel viđ sig í kennaranáminu





21. desember 2007 - SJ skrifar

Handboltamenn í Háskólanum á Akureyri - Magnús

Ţrír leikmenn karlaliđs Akureyrar handboltafélags ţeir Andri Snćr Stefánsson, Einar Logi Friđjónsson og Magnús Stefánsson eiga ţađ sameiginlegt ađ auđga hugann í Háskólanum á Akureyri. Hjalti Ţór Hreinsson rćddi nýveriđ viđ ţá félaga og birtist greinin í jólablađi Vikudags. Viđ fengum góđfúslegt leyfi til ađ birta viđtölin. Kynnumst hér lítillega Magnúsi Stefánssyni, nemanda á 2. ári í Grunnskólakennarafrćđi - nám og kennsla yngri barna.

Fćđingardagur: 1. apríl 1984
Stađa: Vinstri skytta

Magnús, sem iđulega er kenndur viđ Fagraskóg, er ein af bjartari stjörnum Akureyrarliđsins. Ţrumuskot hans í vetur hafa ekki fariđ framhjá neinum, ekki einu sinni Alfređ Gíslasyni landsliđsţjálfara sem valdi hann nýveriđ í ćfingaleiki gegn Ungverjum.

Námiđ: Mér líkar mjög vel í Háskólanum á Akureyri. Ţađ er góđur andi í mínum bekk, deildin er frekar lítil og ţađ er mikiđ um hópverkefni og annađ slíkt. Ţessi mikla samvera dregur fólk saman og sú samstađa er einkennandi hér. Nálćgđin er mjög góđ og mér líkar ţetta afskaplega vel.

Um Fagraskóg og skáldskapinn: Fagriskógur hefur veriđ í fjölskyldunni frá örófi alda. ég er oft kenndur viđ hann og fólk ţekkir mig vart öđruvísi en ađ ég sé bara ţađan. Ţađ er vinsćlt ađ minnast á Davíđ, og fer nánast ađ verđa ţreytt, en hann er langafabróđir minn. Ég er mjög ljóđrćnn og skáldskapurinn sćkir í mig, ég get ekki annađ en viđurkennt ţađ. Sá hćfileiki er ađ skila sér vel í náminu.

Um gengi liđsins í vetur: Gengi liđsins er heilt yfir töluvert fyrir neđan mínar og okkar vćntingar. Viđ erum ekki ađ lađa fram ţađ besta úr okkur en ég tel ţađ vera undir sjálfum okkur komiđ ađ breyta ţví og sýna okkar rétta andlit í leikjum. Ég er ţó nokkuđ sáttur međ mitt gengi ţađ sem af er, ţrátt fyrir ađ mađur sé vissulega aldrei sáttur ţegar liđinu gengur ekki sem skildi. Ég hef veriđ ađ bćta mig og fć góđa tilsögn frá ţjálfurum og reyndar mönnum innan liđsins. Ég er ađ nýta mér ţađ eins og ég get til ađ bćta mig stöđugt og nćst á dagskrá hjá mér er líklega ađ bćta líkamlegan styrk.

Um landsliđiđ: Óneitanlega kom valiđ mér skemmtilega á óvart. Ţetta er mikil og góđ gulrót fyrir mig og ég lít á ţetta sem veriđ sé ađ verđlauna mig fyrir ađ hafa stađiđ mig vel međ Akureyrarliđinu. Ţetta var mjög góđ og skemmtileg reynsla, eitthvađ sem mun hvetja mig áfram til ađ bćta mig enn frekar. Hvort ég verđi í hópnum sem fer á EM veit ég nú ekki en mađur á aldrei ađ segja aldrei. Ég get ekki gert neitt annađ en ađ spila vel fyrir liđiđ og ţađ er svo undir landsliđsţjálfaranum komiđ hvort hann telji sig geta nýtt krafta mína eđa ekki.



Sjá vef Háskólans á Akureyri
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson