Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Auður stóð uppúr hjá liði Akureyrar ásamt systur sinni Unni

24. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

FH burstaði Akureyri

Akureyrarstúlkur tóku á móti FH á föstudagskvöldið en þetta eru tvö neðstu lið deildarinnar og því var búist fyrirfram við hörku botnbaráttuslag. Það er hins vegar óhætt að fullyrða það að leikurinn spilaðist ekki þannig og má segja að stelpurnar okkar hafi aldrei séð til sólar í leiknum. FH tók strax yfirhöndina frá byrjun og komst meðal annars í 6-2 eftir 10 mínútna leik. Allan fyrri hálfleik virtist sem FH liðið væri eitt af toppliðunum og áttu þær ekki í erfiðleikum með að komast í gegnum vörn liðsins auk þess sem að markvarslan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Staðan í hálfleik var 15-11 FH í vil, eftir að Ester skoraði mark úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn.

Í seinni hálfleik var það sama uppá teningnum, okkar stelpur voru andlausar og FH þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að raða inn mörkunum á meðan sóknin var stirð hjá Akureyri og stelpurnar létu Ebbu Særúnu, fyrrum leikmann KA/Þórs, trufla sig alltof mikið í 5-1 vörn FH liðsins. Lokatölur urðu 30-20 fyrir FH og niðurstaðan töluverð vonbrigði, stelpurnar geta gert töluvert betur en þær sýndu í þessum leik. Það var þó gaman að sjá þær systur Auði og Unni reynandi allan leikinn og stóðu þær uppúr í leik liðsins að þessu sinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson