Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er mikilvægur leikur hjá Hákoni og félögum á miðvikudaginn

26. febrúar 2008 - Þjálfarar skrifar

Kemst 2. flokkurinn í Höllina um helgina?

2. flokkur karla leikur gegn Víkingum í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ á miðvikudag klukkan 18 og fer leikurinn fram í KA húsinu.

Óhætt er að segja að liðið hafi farið grýtta leið í gegnum bæði 16 og 8 liða úrslitin en strákarnir lögðu FH í 16 liða úrslitunum nokkuð sannfærandi en það er eini leikurinn sem FH ingar hafa tapað í vetur. Í 8 liða úrslitunum vannst svo fimm marka sigur á útivelli gegn Val.

Bikarúrslitaleikurinn sjálfur fer svo fram um komandi helgi en hann verður leikinn á sunnudaginn 2. mars í Laugardalshöllinni. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Stjarnan og HK og fer sá leikur fram í kvöld, þriðjudagskvöld, í Mýrinni.

Við hvetjum alla til að mæta í KA húsið kl. 18 á miðvikudag og styðja við bakið á strákunum á leið sinni í úrslitaleikinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson