Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ljóst er að eitthvað þarf að gera til að peppa upp mannskapinn fyrir lokaleikina





19. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Afleitt tap karlaliðsins gegn Val

Það var eftirvænting í loftinu fyrir leik Akureyrar og Vals í dag því að leikir þessara liða hafa yfirleitt verið hin besta skemmtun. Lið Akureyrar var þó illa vængbrotið því besti leikmaður liðsins í undanförnum leikjum, markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson sneri illa á sér ökkla á æfingu á fimmtudaginn og sat því á meðal áhorfenda í dag. Siguróli Magnússon og Arnar Sveinbjörnsson stóðu vaktina í markinu og áttu vægast sagt afleitan dag, vörðu samtals fimm skot og í því lá munurinn á liðunum í dag því að Ólafur Haukur Gíslason markvörður Vals átti prýðilegan dag og reyndist okkar mönnum erfiður og því fóru Valsmenn með öruggan tíu marka sigur 30-40.

Í byrjun leit þó út fyrir hörkuleik og hafði Akureyri frumkvæðið í leiknum upp í stöðuna 7-6. Þá kom slæmur kafli og Valsmenn skora næstu fimm mörk og breyta stöðunni í 7-11, sá munur hélst nokkurn tíma en með seiglu tókst Akureyri að minnka muninn í eitt mark, 14-15 og síðar í 15-16. Valsmenn spýttu aftur í lófana og fóru með þriggja marka forskot í hálfleik 16-19.

Siguróli varði eitt skot í fyrri hálfleik og Arnar ekkert og má svo sem segja að vera einungis þrem mörkum undir miðað við þá staðreynd sé allt að því afrek.

Upphaf síðari hálfleiks var síðan grátlega lélegt, á fyrstu tíu mínútunum skorar liðið einungis eitt mark gegn átta mörkum Valsara og staðan orðin 17-27 og leikurinn þannig séð búinn. Það sem eftir lifði leiks hélst munurinn í kringum tíu mörkin, varð mestur tólf mörk og lokatölur 30-40 Valsmönnum í vil.

Í raun er ekki ástæða til að hafa mörg orð um leikinn sem flestir leikmenn vilja örugglega gleyma sem fyrst. Leikurinn hafði í raun enga þýðingu fyrir Akureyri þar sem Stjarnan krækti í stig í gær sem gerði það að verkum að Akureyri átti engan möguleika á að hækka sig úr 6. sæti deildarinnar. Enda má segja að áhugaleysið hafi skinið af flestum leikmönnum í dag ef fyrstu tíu mínúturnar eru undanskildar.

Mörk Akureyrar skoruðu: Jónatan 5 (2 víti), Magnús og Oddur 4 hvor, Ásbjörn, Einar Logi, Hörður Fannar og Jankovic 3 hver, Heiðar Þór 2, Andri Snær, Björn Óli og Goran 1 mark hver.

Siguróli varði þrjú skot og Arnar tvö þannig að ljóst er að markvarðarstaðan verður höfuðverkur liðsins í þeim tveim leikjum sem eftir eru í mótinu. Siguróli má eiga það að hann reyndi hvað hann gat en Arnar virtist gjörsamlega áhugalaus og alls ekki vera þátttakandi í leiknum. Þjálfarar liðsins hljóta því að kalla þriðja markvörðinn, Elmar Kristjánsson til næsta leiks.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson