Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Andri fann sig vel á móti Roland í leiknum í dag
28. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Enn einn spennuleikurinn gegn Stjörnunni
Það var dálítið skrýtin stemming í Garðabænum á sunnudaginn þegar Stjarnan tók á móti Akureyri Handboltafélagi og þýðingarleysi leiksins varðandi Íslandsmótið býsna augljóst. Um það bil fimmtán áhorfendur mættu og þar af helmingurinn norðanfólk.
Leikmenn Akureyrar voru miklu mun sprækari en heimamenn í fyrri hálfleik og leiddu allan hálfleikinn, náðu mest fjögurra marka forystu 10-14 eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Menn voru greinilega mættir til að hafa gaman að hlutunum og léku vörn Stjörnunnar oft grátt, skoruðu t.d. ein þrjú sirkusmörk auk þess sem hornin og línan nýttist vel. Arnar Sveinbjörnsson stóð í markinu og átti prýðilegan leik, tíu skot varin í fyrri hálfleiknum. Stjörnumenn náðu að minnka muninn niður í eitt mark 16-17 fyrir lok hálfleiksins en síðasta skot hálfleiksins var þó vítakast sem Jónatan setti í stöng og út.
Stjörnumenn hófu seinni hálfleikinn af krafti og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum 18-17 en eftir það var jafnt á flestum tölum upp í stöðuna 22-22. Roland Valur, markvörður Stjörnunnar datt þá í sinn besta ham og náði að loka algjörlega á skyttur Akureyrar með frábærri markvörslu og smám saman seig Stjarnan fram úr og var útlitið orðið heldur dökkt hjá okkar mönnum, fimm mörkum undir 31-26 og einungis sjö mínútur eftir af leiktímanum.
En liðið beit vel frá sér á lokakaflanum, vörnin small saman og Elmar Kristjánsson sem var kominn í markið tók þau skot sem sluppu í gegn þannig að Stjarnan skoraði ekki mark en Akureyri minnkaði muninn í eitt mark 31-30 og síðasta sóknin var Akureyrar. Brotið var harkalega á Einari Loga og hefði maður viljað fá viðkomandi Stjörnumann út af fyrir tiltækið en svo varð ekki, í lokin var brotið á Herði Fannari á línunni og í stað þess að stoppa tímann létu dómararnir leiktímann renna út þannig að einungs fékkst aukakast sem ekkert varð úr.
Það var í rauninni fúlt að fá ekki stig út úr þessum leik því eins og áður segir spilaði Akureyri mun skemmtilegri bolta í þessum leik. Eins og áður segir reyndist Ronald Valur skyttunum okkar erfiður og sömuleiðis gekk vörninni ekki nógu vel að stöðva Björgvin Hólmgeirsson sem var atkvæðamestur Stjörnumanna með átta mörk. Í sóknarleik Akureyrar gekk línu- og hornaspilið vel að þessu sinni sem skilaði flestum markanna svo og einum sex vítaköstum.
Mörk Akureyrar:
Jónatan 10 (5 víti), Andri Snær 5, Hörður Fannar og Magnús 4 hvor, Nikolaj 3, Goran 2, Einar Logi og Þorvaldur 1 mark hvor.
Markverðirnir Arnar og Elmar stóðu vel fyrir sínu, Arnar með 14 skot varin og Elmar með 3.
Í þessum leik má segja að "gömlu mennirnir" hafi fengið að sýna sig því að þeir leikmenn 2. flokks sem að öllu jöfnu eru í hópnum fengu frí (nema markverðirnir) en 2. flokkur á leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í dag, mánudag.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson